

Meyjan
Árstími Meyjunnar er í lok sumars. Þá hefur gróðurinn náð blóma og ávextir jarðarinnar þroska. Meyjan er því fædd á frjósömum uppskerutíma, tíma athafnasemi, vinnu og undirbúnings fyrir komandi haust og vetur.
Jarðbundin og dugleg
Hin dæmigerða Meyja er jarðbundin og raunsæ. Hún hefur sterka rökhugsun og sérstaka hæfileika og áhuga í sambandi við viðskipti, miðlun, menntamál og þjónustustörf. Meyjan er iðulega dugleg og iðin og á oft erfitt með að sitja kyrr og slaka á. Sumar Meyjur taka til dæmis aldrei frí eða fara að vinna eitthvað annað í fríinu og fá samviskubit ef þær hafa ekki eitthvað fyrir stafni. Oft er Meyjan eirðarlaus og þá einkennist framkoma hennar af hreyfanleika, málgefni og vissu stressi.
Skýrleiki
Meyjan hefur skarpa hugsun og það er algengt að sjón hennar sé með afbrigðum skýr, þ.e.a.s. hún sér veikleika í skýru ljósi og er meðvituð um útlit, klæðaburð og hegðunartakta fólks. Hún er nákvæm og sér einstök smáatriði hvers máls. Nákvæmni á smáatriði er það mikil að stundum tekur hún ekki eftir heildarmyndinni, trén skyggja þá á skóginn. Meyjan er einnig næm á hið líkamlega, á líkama sinn og útlit, og það sem hún borðar og lætur ofan í sig. Áhugi á mataræði, heilsumálum, líkamsrækt og hollustu er því algengur.
Fullkomnunarþörf
Eitt sterkasta einkenni Meyjunnar er fullkomnunarþörf. Ekkert er nógu gott. Alltaf þarf að laga og betrumbæta. Hún gerir því miklar kröfur til sín (og annarra) og finnst að hún þurfi stöðugt að vanda sig og ná fullkomnu valdi á viðfangsefnum sínum. Þessi fullkomnunarþörf er bæði blessun og bölvun. Hún leiðir til þess að Meyjan á til að vanmeta sjálfa sig en einnig til þess að hún leysir verkefni sín vel af hendi og er treystandi fyrir því sem hún á annað borð tekur að sér.
Skörp hugsun
Meyjan hefur að upplagi raunsæja og gagnrýna hugsun og sérstakan hæfileika til að greina mál í smáeiningar, raða niður í flokka og leita að villum. Meyjan er hinn fæddi gagnrýnandi. Hugsun hennar er einnig vel til þess fallin að læra tungumál eða leggja stund á fræðistörf. Auðvitað fást ekki allar Meyjar við slík mál en samt sem áður búa þær yfir þessum eiginleikum. Ef þær fást ekki við fræðilega gagnrýni taka þær í staðinn vini sína, ættingja eða vinnufélaga fyrir og finna veikleika í fari þeirra, oftar en ekki í þeim tilgangi að hjálpa eða laga það sem Meyjan telur að hafi farið miður.
Viðskipti
Meyjan hefur oft áhuga á verslun og viðskiptum, enda ríkt í eðli hennar að vilja framkvæma og hreyfa við hlutum, eða láta málin ganga áfram. Kyrrstaða er andstæð eðli hennar, enda er Meyjan breytilegt merki sem þarf á hreyfingu og fjölbreytni að halda. Hún verður eirðarlaus ef hún hefur lítið fyrir stafni. Meyjan hefur í raun gaman af því að vinna, kannski vegna þess að hún á erfitt með að vera kyrr. Eitt helsta einkenni margra Meyja er að vera á sífelldum þönum, hlaupandi fram og aftur, alltaf að gera eitthvað.
Vinna og árangur
Til að næra lífsorku sína þarf Meyjan að sjá eftir sig áþreifanlegan árangur. Ef hún er fræðimaður er æskilegt að hún geti bent á bók sem hún átti þátt í að semja, ef hún er handverksmaður þarf hún að sjá verk sín í notkun. Ef til vill þarf hún fyrst og fremst að hafa það á tilfinningunni að starf hennar hafi tilgang og gagnist öðrum. Meyjan er merkið sem hefur það verkefni að koma uppskerunni í hús og búa í haginn fyrir komandi haust og vetur. Hún þarf að vinna.