

Steingeitin
Árstími Steingeitarinnar markar ákveðin kaflaskil sem verða í náttúrunni um vetrarsólstöður. Þá er nóttin lengst og dagurinn stystur á árinu. Upp frá því fer birta vaxandi. Steingeitin er því frumkvæð og er merki byrjunar og vaxandi jákvæðrar uppbyggingar.
Jarðbundin
Steingeitin er jarðbundin og leggur áherslu á að ná áþreifanlegum árangri og standa traustum fótum í tilverunni. Ef hún ákveður að gera eitthvað vill hún láta athöfn fylgja orðum. Hún er raunsæ og sér heiminn eins og hann er, en er tiltölulega laus við óskhyggju.
'Byggingameistari'
Steingeitin er að öllu jöfnu varkár og skipulögð og vill byggja upp lið fyrir lið, leggja einn stein í einu og treysta undirstöðu hans áður en hún leggur þann næsta. Hún reynir að ná samfellu í líf sitt og störf, byggja á því sem er fyrir og bæta það og auka. Hún er því lítið gefin fyrir róttækar breytingar og telst frekar íhaldssöm. Steingeitin vill halda fast í gömul gildi og virða siði og hefðir fortíðarinnar. Ekki má misskilja orðið íhaldssemi, en það sem átt er við er að hún er íhaldssöm á sína eigin siði og reglur, það sem henni sjálfri þykir kært. 'Rokkarinn' í Steingeitinni heldur fast í greiðsluna þó að hann sé kominn nálægt sextugu. Hann er íhaldssamur á sitt.
Formfesta
Hin dæmigerða Steingeit er alvörugefin. Steingeitin er kraftmikið merki, en á til feimni og hlédrægni. Oft eru viðbrögðin þau að leggja áherslu á grín, sem á þá að fela sterka sjálfsmeðvitund. Steingeitin er einnig varkár, yfirveguð og formföst. Sjálfsagi skiptir hana miklu og henni er illa við að missa stjórn á skapi sínu. Hún heldur því oft aftur af sér og sýnir sjaldan reiði. Hún á frekar erfitt með að sleppa fram af sér beislinu.
Ábyrgð
Sterk ábyrgðarkennd einkennir Steingeitina. Hún reynir að leysa hvert það mál sem hún tekur að sér af kostgæfni, en sterk fullkomnunarþörf gerir það að verkum að henni finnst sjaldan sjálfri að það sem hún gerir sé nógu vel af hendi leyst. Sjálfsafneitun er einnig sterkur þáttur í fari hennar og hún fórnar sér oft eða afneitar eigin löngunum vegna ábyrgðar, vinnu eða annarra utanaðkomandi þátta. Oft er sagt, bæði í gamni og alvöru, að Steingeitin beri áhyggjur heimsins á herðum sínum.
Árangur
Dæmigerð Steingeit er að öllu jöfnu dugleg og vinnusöm. Hún vill ná árangri og búa vel. Ytri aðstæður skipta hana miklu, svo sem að vel sé búið að heimili hennar, fjölskyldu og ástvinum. Hún leggur því iðulega mikið á sig til að koma þessum málum vel í höfn.
Stjórnsemi
Oftast er sagt að Steingeitin sé metnaðargjörn og stjórnsöm. Sjálf neitar hún þessu hins vegar iðulega og segir að hún sé einfaldlega beðin um að taka á sig ábyrgð og sé ýtt upp á við af öðrum. Steingeitin segir oft að hún hafi engan áhuga á því að stjórna, hún vilji einungis hjálpa og viti stundum betur en aðrir hvernig best sé að vinna ákveðin verk. Eins og með orðið íhaldssemi, er rétt að útskýra orðið metnað. Margir rugla metorða- og metnaðargirni saman. Staðreyndin er sú að sumar Steingeitur eru metorðagjarnar, en flestar eru þær metnaðargjarnar, í þeirri merkingu að vilja gera vel það sem þær taka að sér.
Skipulagning
Til að viðhalda lífsorku sinni og endurnýja hana þarf Steingeitin að búa við öryggi og reglufestu. Hún verður óróleg ef jarðsambandið er lítið eða mál hennar í óvissu og lausu lofti. Hún þarf að búa við ákveðið skipulag og vill móta líf sitt með hliðsjón af langtímaáætlunum. Hún skipuleggur því oft fram í tímann og vill að því skipulagi sé framfylgt. Steingeitin þarf að hafa vaðið fyrir neðan sig.
Gamla geitin
Oft er sagt að Steingeitin sé það merki sem eldist hvað best. Sagt er í gríni að hún fæðist gömul og leiðinleg, en kveðji ung og skemmtileg. Vegna sterkrar fullkomnunarþarfar og sjálfsgagnrýni er fyrri hluti ævinnar erfiðari, en þegar hún eldist og nær tökum á viðfangsefnum sínum þá verður þetta allt léttara. Að lokum má svo geta þess að Steingeitin býr yfir geysilegri seiglu og þó að hún virðist dauð og tröllum gefin, rís hún iðulega upp aftur og nær að endurheimta það sem virtist glatað.