Hákon Ingi og Jórunn Móna
 

Fyrstu árin - Litla systir

Fæðingin

Ég fæddist þann 31. ágúst 2012 klukkan 11:37.

Mamma vaknaði klukkan 4 um nóttina með verk og klukkan hálf fimm byrjuðu samdrættir og var komin á spítalann klukkan 7:20.

Fæðingin fór fram á Landspítalanum og gekk vel eftir að Brynja Ragnarsdóttir fæðingarlæknir snéri mér, þar sem ég kom skökk niður grindina. Guðríður Ingvarsdóttir ljósmóðir tók á móti mér.

Viðstödd fæðinguna voru pabbi, Guðríður ljósmóðir og 5. árs læknanemi.

Þegar ég fæddist var ég 3990 g eða rétt tæpar 16 merkur og 54 cm að lengd.

Ég fæddist með lítið hár sem var ljóst/skollitað að lit og augun dökk blá.

Eftir að ég fæddist var ég í mömmufangi í góða stund en svo fórum við mamma og pabbi á Hreiðrið og vorum þar fram á kvöld. Fyrstu nóttina svaf ég heima í Arnarsmára ásamt mömmu, pabba og Hákoni Inga stóra bróður mínum.