

úps... gleymdi að kvitta áðan.
Hæ skvís! Mamma sagði mér að þú og mamma þín hefðuð komið í heimsókn og að ég hefði bara sofið sem fastast á meðan úti í vagni! Hundfúlt að missa af ykkur - vonast til að hitta ykkur kannski í dag, og vona þá að við getum bæði haldið okkur vakandi, hehe. Knús...
Vá, eru bara komnar tvær litlar tennur! Til hamingju með það. Ég hélt það væri bara ein :) Flottar nýju myndirnar, baðmyndin er alveg ómótstæðileg, algjör krúsídúlla. Hlökkum til að hitta þig næst!
Hæ skvísa ! Til hamingju með tönnslurnar þínar. Okkur hlakkar rosalega til að koma heim og hitta þig. JE langar að fá að leika við þig duglega stelpa.
Knús frá okkur.
Var að enda við að skoða nýju myndirnar af litlu vinkonu minni! Þú ert algjört æði - svo brosmild og fín! Rosa flott í sundinu - og myndbandið þar sem þú hlærð einsog engill er æðislegt! :)
Hlakka til að hitta þig um jólin!
Knúsar frá Köben....
Wow hvað ég var að skoða margar myndir af þér! Ég er bara svo sáttur að sjá þig á Skype-inu að ég bara gleymi því að kíkja á myndirnar!!! Mamma þín er ekkert smá dugleg að taka myndir af þér! Algjör snilld þarna skvísumyndin af ykkur öllum stelpunum í mömmuklúbbnum!
luv,
Fúsi sænski
p.s. bíð spenntur eftir því að þið flytjið út til okkar! eheheheh
Þú ert algjör snúlla Móeyður Dóra og greinilega stutt í brosið hjá þér. Hlakka til að sjá þig aftur vonandi um jólin í júlluhitting þú ert nú allveg gjaldgeng þar ;) Kveðja Brynhildur og co
Hæ MóaDóra, þú ert bara geðveik, þvílíkt vídjóband með þér!!! ég er bara búin að hlægja og hlægja líka ..:D þú ert bara yndislegust, gott að sjá þig og vera nálægt þér:) Þú færð sko ömmu til að gleðjast og hlægja með þér=) Amma elskar þig<3 Sjáumst hress og hlægjandi á morgun litla hlátursbjallan mín;**
Hææææj Móeiður sætust mííííín;* Litla skellibjallan hennar frænku :D váá ég hlakka svo mikið til að sjá þig næst .. og sjá nýju tönnina þína:O þú ert laaaangfallegust!! Elska þiiiig MESTAST Í HEIMINUM;* Vonandi fær frænka eitthvern tímann að vera svo fyndin að þú hlærð svooona mikið!!!:D Sjáumst soon litla rófan mín<3
Þú ert nú meiri prinsessan og greinilega alveg langflottust í sundinu! Gaman að sjá loksins myndir af þér, tók aðeins of langan tíma að biðja múttu þína um lykilorðið:)
var að skoða nýju myndirnar, algjör sæta snúlla hún Móeiður :)
ahahha :) Nei amma komst ekki í hárið mitt - kamburinn er bara orðinn svo síður að það er happ ef hann nær að haldast uppi! Hins vegar eru amma og mamma að krossa fingur að hægt verði að setja í mig spennu um jólin heheheeh.... á allavega orðið heila tösku af spennum og teygjum sem amma bætir í við hvert tækifæri!
Skilaboð frá mömmu til DK fjölskyldu þá er víst ekki enn útséð með augnlitinn minn að mati sérfræðinga hihi ;) !!! Engu að síður er mamma hæst ánægð með að við mæðgurnar skulum ENN þá vera með nákvæmlega sama augnlit :-)
Humm....var að skoða nýju myndirnar og fór að velta fyrir mér hvort Amma Henríetta hafi komist í hárið þitt ? Hvar er fíni kamburinn sem þú varst alltaf með ? Þú ert alltaf svo sæt með fallegu bláu augun þín og sæta stóra brosið þitt :-)
Knús frá okkur.
Hæ sætust! Þú ert ekkert smá flott í sundi og við erum bara búnar að liggja hér í flisskasti yfir því hvað þú ert mikið krútt ;) Óska pabba þínum til hamingju með fallegu bláu augun þín, haha (sorry ck). Lovjú rosa mikið..... kv. frá DK
hæ hæ:) takk fyrir síðast;) það var rosalega gaman að koma loksins í heimsókn til þín.....mér fannst ekkert smá gaman að hitta þig aftur;) snuddurnar þínar voru soldið spennandi líka.....knús til ykkar, kv.Gígja Kristný og co....
Hæhæ Móeiður Dóra, rosalega ertu orðin stór og alltaf jafn sæt:) gaman að sjá hvað þú ert rosalega dugleg í sundi, við verðum að láta verða af því að leyfa þér og Hirti Jóhanni að fara hittast. Biðjum að heilsa mömmu þinni og pabba
Kv. Siggi, 'Osk og Hjörtur Jóhann
Hææj sætu flott siða hlakka til að sjá ykkur aftur hringdu bara i mig ef þig vantar pössun er alltaf frí fyrir ykkur hringið í 8935935 það er siminn minn svo kem ég einhvern timan með henriettu ingibjörg sjáfumst fljótlega bææj;)
Æðislega gaman að skoða nýju myndirnar þínar, þú ert ROSALEGA dugleg stelpa. Það er alveg greinilegt að það er margt að gerast hjá þér þessa dagana litla sæta.
Stórt knús !
Dugleg í sundi og skemmtilegar myndir. Eva Hrönn segir bara " Hún er krútt við allar myndirnar :) "
Hæ fallegust! Mikið var gaman að hitta þig um daginn og knúsa! Nýju myndirnar eru æði - og þú líka :)
Vá hvað maður er flottur í sundinu!!! Ekkert smá! Þú kannski kennir mér taktana næst þegar við hittumst, þarf að læra þetta áður en fer sjálf í sund einn daginn ;)
jæja unga hnáta bara farin að synda og gaman... duglegust !!! frændi fer að kíkja á þig á næstunni =D
one love <3
VÁVÁVÁ fyrir Móeiði Dóru=)
Ég var svo hissa þegar ég sá hvað þú varst ROSALEGA DUGLEG í sundinu:)
Ég ætla að fá að koma eitthvern tímann með þér í sund:) ég er bara að springa úr stolti hérna af litlu fallegu frænku minni ;**
Keep up the good work!! skvísipæ ég elska þig <3
Hæ og takk fyrir síðast!! Við vorum ekkert smá flottar saman í hittingnum. Nýju myndirnar þínar eru rosa fínar og þú ert algjör dúlla í sundbolnum þínum með skvísubelti ;)
Hlakka til að hitta þig næst!
Slef, Sunna og co.
Hæ sætasta vinkona. Rosa gaman að sjá nýju myndirnar af þér. Ótrúlega hefur verið gaman á Tenerife. Hlakka til að hitta þig og mömmu bráðum.
Hello Móeiður Dóra elsku duglega fallega, framúrskarandi ömmustelpan mín. Takk fyrir ánægjulega Tenirífe viku með tér, tú varst svo dugleg og skemmtileg og ég er svo stolt af þér, elska tig svo svo mikið, Móeiður Dóra þú ert ljós inn í mitt líf. þín amma Henríetta alltaf.
Jii hvað þú ert orðin stór og sæt stelpa :D algjör bjútí bomba... get ekki sagt annað. Yndislegt að fá að fylgjast með og skoða myndir á síðunni þinni.
knús og kossar til þín og ma og pa frá Köben.
Telma
Blessuð og sæl Móeiður!
Gaman að skoða allar þessar flottu myndir af þér inn á heimasíðunni.
Hlakka til að hitta þig á morgun.
Kveðja Erna María p.s mamma biður að heilsa mömmu þinni
Hæ Móeiður sæta:) gaman að skoða myndirnar af þér frá Tene.....þetta er sko geggjað að fara svona út í sólina og slappa af;) mér sýnist að þú sért dugleg að drekka hjá mömmu þinni eins og ég var:) hahahah....
Verðum að fara að kíkja í heimsókn til ykkar, þú stækkar svo fljótt!
stórt knús, þín vinkona
Gígja Kristný
Þú ert soddan bjútí litla stelpurófa.....þegar ég skoða myndirnar þá langar mig bara að taka þig og knúúússsaa þig fast. Ég er líka nokkuð viss um að Jóhann Emil er sammála mér. Okkur hlakkar rosalega til að fá að hitta þig þegar við komum heim.
kveðja frá okkur í sólinni.