Ólafur Már Sæmundsson
 
 


Ég er sætur lítill strákur sem kom í heiminn kl 12.48 mánudaginn 26.november 2007 eftir 39 vikna meðgöngu, átti ekki að koma fyrr en 3.desember.  Eg þurfti að koma fyrr í heiminn af því að mamma mín fékk meðgöngueitrun.  Eg var samt voða stór og flottur, 3950 g og 52 cm að lengd.  Foreldrar mínir eru voða stoltir af mér enda er ég voða duglegur.  Þau heita Inga Birna Olafsdóttir(79) og Sæmundur Þór Hauksson(79).  Þau búa í Reykjavík.

Hárið mitt er ljósbrúnt og ég er með blá augu.  Ég er mikið matargat og finnst alveg afskaplega gaman af því að borða.  Aðaláhugamálin mín eru að leika við kisana mína og ég hef líka afskapleglega gaman af tónlist og ég dansa og tralla við tónlistarleikföngin mín.  Reyndar er alveg afskaplega gaman að því að tæta svolítið líka og mamma og pabbi hafa nóg að gera við að elta mig um alla íbúð.


Núna 21. júlí 2010 varð ég svo stóri bróðir, en þá fæddist litla systir mín. Ég er voðalega stoltur af henni og mjög góður við hana.



Munið ég á gestabók, það er svo gaman þegar fólk skrifar í hana{#emotions_dlg.smile}



Heimsóknir í dag: 3
Heimsóknir frá upphafi: 15635