Rósa María og Sylvía Rán
 

NÝJAR  MYNDIR Laughing

September-desember 2011

 

 

Lilypie - (BDLO) 

 

 

 Daisypath - (ZvrJ)

 

 

 


Rósa María fæddist þann 27 maí 2007, á Hvítasunnuni, þremur dögum fyrir áætlaðan fæðingardag. Fæðingin átti sér stað á Landspítala Íslands. Ég lét sko hafa fyrir mér þar sem fæðingin gekk frekar hægt og erfiðlega, en með hjálp frá pabba, ömmu Sillu og yndislegrar ljósmóður sem heitir Stefanía, tókst þetta að lokum. Ég kom í heiminn kl:17.46 Pabbi fékk að klippa naflastrenginn. Því miður fékk ég bara að stoppa mjög stutt á bringunni hennar mömmu, rétt til að taka myndir, þar sem það þurfti að svæfa mömmu svo hægt væri að sauma saman það sem rifnaði. Ég fór þá bara til pabba og ömmu í staðin og var það ekki slæmt, þar sem ég er svo mikil pabba stelpa. Ég var 3935g á þyngd (ca 16 merkur) og 50 cm löng með dökkt fallegt hár og miklar bollukinnar.  Flestir segja að ég sé alveg eins og pabbi og hans fólk, en dökka hárið kemur frá mömmu . Ég og mamma þurftum að vera 4 daga upp á spítalanum áður en við fengum að fara heim, þar sem mamma þurfti að fá að jafna sig áður en hún treysti sér heim. Mamma segir að ég sé mjög góð en mjög ákveðin ung dama.

Rósa María fæddist á sunnudegi, eða réttara sagt á hvítasunnudegi. Hér kemur vísa sem passar því vel við hana:

 Börn

Mánudagsbarn er þægt og þýtt,

þriðjudagsbarni er alltaf hlýtt,

miðvikudagsbarn er milt í geði,

fimmtudagsbarn er fullt af gleði,

föstudagsbarn er blítt á brá,

laugardagsbarn er lipurtá.

En sunnudagsbarnið segi ég þér,

af öllum öðrum börnum ber.

 



Sylvía Rán fæddist Þann 4. ágúst 2009, 10 dögum fyrir áætlaðan fæðingardag. Fæðingin átti sér stað á Landspítlala Íslands. Ég var tekin með keisara. Vatnið fór hjá mömmu um miðnætti 3. ágúst, þannig að hún fór upp á spítala, en var send heim til að hvíla sig, þar sem hún var ekki komin með neina verki. Um 5 leitið var mamma komin með svo mikla verki að hún fór aftur upp á spítala og ég var komin í heiminn kl: 06:29. Allt gekk mjög vel og hratt fyrir sig. Pabbi var viðstaddur keisarann og Rósa systir var í pössun hjá ömmu Sillu. Ég var 3385g (13,5 mörk) og 48 cm, með fallergt mjög dökkt hár. Flestum finnst ég líkjast mjög mömmu, þegar hún var á sama aldri. Ég og mamma vorum 2 sólahringa upp á spítala en fengum síðan heimaþjónustu í nokkra daga á eftir.

 

Mamma okkar heiti Auður Dóra Franklín og pabbi okkar Magnús Þór Bjarnason. Þau eru mjög stoltir foreldrar.

 

 

Takk fyrir að líta inn. Vinsamlega kvittið fyrir innlitið svo mamma og pabbi geta fylgst með hverjir skoða síðuna.



Heimsóknir í dag: 1
Heimsóknir frá upphafi: 8565