Elísabet Lilja Árnadóttir
 


Kínverska Stjörnumerkið 

FIRE Villisvínið - Nálægustu ártöl: 1887, 1947, 2007

Kröftugt og ákaft, tilfinningaríkt og hugrakkt. Ekki slæmt... Það mun sýna hetjulund í öllum sínum aðgerðum og stuðningsmenn þess fylgja því í sannfærðri blindni.

FIRE Villisvínið mun ná hæstu hæðum í árangri eða falla annars niður í dekkstu myrkur smánar og metorðasviptingar, eftir því hvaða leið það velur sér í lífinu, og hversu vel því gengur að hemja ákafa sinn og kraft.

Það mun aldrei hræðast hið óþekkta en skunda á þess fund fullt bjartsýni og sannfært um eigin tilfinningu fyrir því að allt fari vel. Oftlega reynir það óþarflega á guð og lukkuna og eins og við vitum þá vinnst ekkert án þess að leggja stórt undir, og því tapar þessi gerð svína líka oft stórkostlega. Það stjórnast samt frekar af ást en tilhugsuninni um að verða ríkt sjálfu sér til handa, en vill geta veitt sínum nánustu allt það besta og vandaðasta.

Þvæi finnt ekkert merkilegt við það að gera öðrum greiða, jafnvel fólki sem það þekkir ekki, og verður oft frægt fyrir gjafmildi sína gagnvart vinum sínum.

Þegar það er á annað borð neikvætt þá er það ítið eða jafnvel frekt, fullt sektarkenndar, en oftast er þeim þó líst sem gjafmildum og hleypidómalausum. Það mun henta þessu svíni að stjórna stóru fyrirtæki eða verksmiðju vegna þess að það nýtur sín best með mannfjölda undir sinni stjórn.



Heimsóknir í dag: 4
Heimsóknir frá upphafi: 18054