
Hæ krúsumús,
núna eru bara 8 dagar í að við fáum að knúsa þig. Get varla beðið eftir að sjá þig. Ragnheiður Adda á eftir að kenna þér smá í dönsku en þú talar víst meira á íslensku en hún svo þar mátt þú kenna henni :-)
Knús og kram til ykkar allra
Hæ Skyrstrákur :) rosalega sætar myndir, enda ert þú sætastur í heimi!!!
Hæ sæti minn,
en hvað frænka var glöð að sjá nýjar myndir af þér. Það verður ekki leiðinlegt að fara að taka myndir af frænkum þínum og þér saman aftur. Enda eru allar myndir af ykkur flottar, ótrúlega falleg börn ;-)
Knús og kossar til ykkar allra
Hæ sæti frændi, meira hvað þú ert búin að vera lasin músin mín.
En þú verður að hressa þig við áður en þú kemur hingað til okkar:-)
Við erum sko alveg farin að telja niður þangað til að þið komið, getum ekki beðið aftir að sjá ykkur, þó mest þig!!!!
Knús og kossar til ykkar allra frá frændum og frænkum hér
salut (hæ) LITLI frændi rosalega ertu orðinn stór, hlýtur að vera þessi frægi íslenski matur hlakka til að hitta þig (sem fyrst)
milles bisous (þúsund kossar)
Zoé STÓRA frænka
Hæ Hæ frændi :0)
Þú ert sko bara flottastur.
Gaman að fylgjast með
Kveðja frá Selfossi
Vó en flottar nýjar myndir, því miður varstu sofandi í gær svo ég fékk ekki að leika við þig.
Uss tek skammirnar til mín en kíkti síðast í gær, áttaði mig bara ekki á því að það væri búið að bæta í það gamla ;-)
En guuuð hvað maður er sætur og hvað ég sakna krúttustráksins míns. Get ekki beðið eftir að knúsa hann. Verð bara að fara að sjá ykkur.
Knús og kossar
Flottar myndir frá áramótum. Þorri og Uggi standa sig hvað best sem fyrirsætur.
Hæ krúttð mitt,
hvernig væri að mamma þín setti inn nýjar myndir af þér.
Okkur langar svo svakalega til að sjá þig :-)
Knús og kossar frá okkur og öllum
Rosalega ertu orðinn stór og sterkur, og alveg svakalega myndalegur drengur :)
Gleðilegt nýtt ár!!!
Kveðja Karen S.
Ha ha svona erum við bara dugleg í Danmörkinni, þú ættir að taka þér þetta til fyrirmyndar hehe. En það þýðir ekkert að kvarta þú varst með þau á jólunum :-)
En við hefðum alveg gjarnan viljað hafa ykkur með hérna, það hefði verið best.
Knús og kossar og saknaðarkveðjur
Rosalega er maður kröftugur í skyrátinu, og svo gefur maður frá sér alveg prófessional hljóð við athöfnina! Vááúú mmmhh æðislegt myndband. Kveðja Anna og Amma Ranka
Við erum líka að bíða eftir myndum, helst núna takk :-)
knús og kossar
Hæ hæ, Sigrún hérna úr Hvassó. Ofsalega ertu sætur, en ég væri nú helst til í að fá að sjá fleiri myndir en bara forsíðumyndina :) endilega sendið mér lykilorðið
Hæ sætasti frændi,
það er meira hvað þú ert duglegur að borða sjálfur. Og ekkert fer til spillis, skyr er góð næring fyrir föt. Það höfum við prófað hér ;-) Við söknum þín alveg svakalega mikið og langar eiginlega bara að hitta ykkur hjá Margréti og Heiðari.
Knús og kossar frá öllum hér
Þú ert náttúrulega BARa flottastur :) Ekkert smá duglegur að borða sjálfur.
Hlakka til að fá þig í heimsókn...ekki svo langt í það ;)
Hæ töffari
Var að skoða myndirnar af þér og það skín nú bara af þér prakkarasvipurinn hehehe :)
kveðja, Friðbjörg
Hæ sætastur, mikið erum við farin að sakna þín hérna í Danmörku. Langar svo í knús frá þér og hún Ragnheiður vill endilega lána þér dótið þegar þú kemur til okkar. Ekki væri heldur leiðinlegt að geta hitt foreldra þína, verður vonandi sem fyrst. En á meðan máttu biðja hana mömmu þína að vera duglega að setja inn nýjar myndir af þér.
Fullt af knúsi og kossum til ykkar
Hæ Þorri Stefán sætilíus.......sem ég hef bara séð á myndum nema einu sinni :)
Ertu til í að pikka í hana mömmu þína og biðja hana um að senda mér lykilorðið inná síðuna þína. Ég er búin að prufa öll íþróttafélög sem mér dettur í hug....en það er greinilega e-ð að sleppa framhjá mér! :)
Ég hef neflinlega voða gaman af að skoða hvað þú verður alltaf sætari og sætari!!
Kv. Tinna Rós...gömul vinkona mömmu þinnar ;)
Hæ. Gaman að skoða myndirnar. Þú ert nú algjör töffari. Bið að heilsa mömmu þinni.
Flott síða
Það var svo gaman að fá að passa litla kút í morgun:)
Hæ ég er búin að reyna öll íþróttafélög sem ég man eftir:) Má ég fá lykilorðið í pósti?:)
elsku kallinn okkar
soknum thin og vonum ad thu sert ordinn hressari en thegar vid forum
amma og afi
kvedjur fra Gussa, Estelle og Zoe
Jeminn hvað hann er sætur!!;) Sé bara hvað hann er mikil orkubolti;) Bestu kveðjur, Begga og Margrét Lilja:)
Hæ,hæ Þorri Stefán!
Vorum að skoða síðuna þína, ofsalega ertu flottur strákur, greinilega svaka duglegur og fjörugur :) Takk fyrir okkur hér á síðunni!
Kveðja Maggi Skúla frændi, Lilja Ýr og Halldóra Líf
Svaka fínar myndir af Þorra okkar.
Bless amma,
Ranka
Alltaf gaman að sjá nýjar myndir af töffaranum með flottustu krullurnar í bænum :-)
Frænka biður að heilsa og vonast til að þú farir að koma í heimsókn!