Þorri, Sveinn og Guðlaug
 

Velkomin á heimasíðu Þorra, Sveins og Guðlaugar :) Endilega skrifið í gestabókina eða athugasemdir við myndirnar, gaman að vita hverjir eru að fylgjast með!


Stóri bróðir fæddist 4. ágúst 2006 kl 20:08 á landspítalanum við hringbraut. Þann 19. ágúst fékk hann nafnið Þorri Stefán og var skírður í leiðinni. Við fæðingu var hann 3490 grömm (tæpar 14 merkur) og 52 cm. Hann fæddist með mikið ljósrautt hár sem heldur áfram að vera rautt, okkur foreldrunum til mikillar undrunar Augun voru dökkblá eins og vill vera og hann var ofboðslega sætur, sléttur og fínn. Snúllinn er alltaf brosandi og sjarmar flesta upp úr skónum. Hann er algjör grallari og á það til að gera okkur örlítið stressuð því hann er mjög uppátækjasamur  


Litli bróðir fæddist 23. október 2008 kl. 01:30 á landspítalanum við hringbraut. Þann 8. nóvember var hann skírður og nefndur Sveinn Ingi. Hann var 4045 grömm (rúmar 16 merkur) við fæðingu og 53 cm, sem sagt vel rúnaður ;). Hann fæddist með smá skammt af dökku hári og með stórar hendur eins og stóri bróðir.


Litla systir kom svo loksins 20. september 2010, viku á eftir áætlun :) Hún var 3.810 grömm og 54 cm, sem sagt löng og grönn! Hún var með mikið af dökkrauðu hári og augun ekki blá - ótrúlegt en satt ;) Hún fékk nafnið Guðlaug Ranka á skírnardaginn 10.10 2010. Guðlaug dafnar vel og er mjög vær og góð.



Heimsóknir í dag: 2
Heimsóknir frá upphafi: 7835