


22 júní 2007 leit lítill drengur dagsins ljós í fyrsta skipti og var það mikill hamingju dagur. Ég vó 4380 gr og var 53 cm eða tæpar 17,5 mörk.Ég dafnaði mjög vel þrátt fyrir veikindi fyrstu 2 vikurnar. Nú er ég orðinn rúmlega 2 ára og er algjör gaur er enn að ná tökum á því að tala þannig að fólk skilji en það er allt í áttina. Ég elska hesta og traktora og allt sem viðkemur vélum og tækjum. Ég bý ásamt foreldrum mínum í sveitasælunni í Hvalfirði og er svo heppin að eiga ömmu og afa í næsta húsi;). Leikskólinn minn heitir Skýjaborg og er ég á deild sem heitir dropinn. ég er mjög duglegur ungur maður og færi öllum sem komast mér næst hamingju og gleði.
Mamma mín hetir Ingibjörg Eyja Erlingsdóttir (84) og pabbi minn heitir Arnfinnur Guðmundur Matthíasson (74)
Ég er svo að verða stóri bróðir í byrjun ágúst og það er mikil tilhlökkun
.
það er líka komin síða fyrir ófædda systkynið mitt og slóðin er http://nino.is/agustbumba
Mamma er Konan
Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.
Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda.
Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.
Mamma er besta kona í heimi
Pabbi er Maðurinn
Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.
Samt veit hann allt !!
Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.
Pabbi er besti maður í heimi.
