Logi og Loftur
 

Vefdagbók

 

Af brćđrunum er ţetta helst ađ frétta:

Loftur:

Spurði Albert vin sinn hvort hann mætti koma heim með honum af leikskólanum. Albert sagði að hann væri velkominn svo Loftur skellti sér í skóna og drífur sig út með Albert og Au Pairinum hans. Arnar er mættur að sækja Loft þegar mamma hans Albert hringir í leikskólann og tilkynnir auka barn heim með au pairinum. Leikskólinn var svoldið miður sín að svona gæti gerst og Loftur veit núna að það er ekki nóg að spurja fjögra ára vini sína um leyfi.

Loftur er núna á síðasta ári í leikskólanum og nýtur lífsins til hins ýtrasta. Kemur reglulega heim með nýjar gómsætar uppskriftir sem hann prófar í skóginum og þær koma oft í kjölfar spurninga sem: mamma verður maður veikur af að borða drullumall? Er það nauðsynlegt að elda snígla áður en maður borðar þá?

Logi:

Bauð mömmu sinni að vera með í klúbbinum sínum. Í klúbbinum eru Logi, Mathias, Lasse og mamma. Þessi klúbbur litar fallegar myndir, selur þær og ætlar svo að biðja Arbejdsmænd um að byggja klúbhús fyrir ágóðan. Veit ekki alveg hvað félagarnir segja þegar Logi tilkynnir að mamma hans sé nú orðin klúbbmeðlimur ;D

Logi er að klára 6 ára bekk og er voða ánægður í skólanum. Hann lærir sitthvað annað en að lesa og skrifa því hann veltir hlutum fyrir sér sem: hvað gera börne lokker við börnin þegar þeir eru búnir að ná börnunum?  

Logi á púka sem býr stundum í kroppinum hans. Þegar púkinn er til staðar nenna foreldrar hans lítið að hafa samskipti við hann og þegar Logi gefst upp á því að vera leiðinlegur, sendir hann púkann í partý. Púkinn reynir samt að komast aftur til hans en þar sem púkinn er pínulítill með rosalega litla fóta, tekur hann svo lítil skref að hann nær ekki Loga, sérstaklega ekki þegar hann er á hjólinu sínu. Mjög heppilegt fyrir fólk sem þarf að umgangast drenginn.

Yfirleitt eru þessir ungar yndislegir og góðir bræður með reglulegum undantekningum svo sem slagsmál og rifrildi. 

Hilsen

13. June 2010 - 09:27

 
 

Snus' bog Jul 2009

Hvor Logis familie har haft glæden af mig i så mange dage kommer der en kort opsummering af hver dag for sig J

19. des: Logis Mormor, morfar og moster kom fra Island så vi havde travlt inden de kom med at gøre klart for dem.

20. des: Mig og Logi købte juletræ sammen med far, lillebror Loftur og morfar. Da vi kom tilbage legede vi i sneen og havde fået gæster når vi endelig kom ind igen. Så kunne vi hygge med kakao og hjemmelavede peberkager.

21. des: Kom Logis faster på besøg, hun overnattede to natter da hun var på vej til Japan. Mig, Logi og Loftur tog også ansvaret for at bevæge mormor og morfar lidt på Bredegrund legeplads.

22. des: Fantastisk sne til at bygge snemand som Logi og Loftur så gjorde sammen med deres moster. De byggede en kæmpe snemand som fik en gulerods næse, jeg kiggede på gennem vinduet hvor jeg ikke ville blive våd.

23. des: Jeg tog igen i Tivoli men denne gang sammen med Logi og hans familie. Efter en dejlig dag i Tivoli kom vi hjem, spiste rigtig god fisk og pyntede vores fine juletræ. Jeg pyntede den nederste del af træet, hvor jeg nemlig ikke er særlig høj.

24. des: Endelig kom jul hvor vi spiste dejlig julemad, Logi spiste flæskesteg men jeg spiste kun kartofler. Efter vi havde spist kom julemanden forbi med gaver til Logi, Loftur og mig. Logi syntes det var virkelig skægt at jeg også fik en gave fra julemanden.

25. des: Dejlig afslappet dag hvor hele familien havde nattøj på indtil aftensmad.  Vi så alle sammen film. Morfar og far spillede nogle af de nye spil sammen med drengene og mig derefter spillede Logi computerspil og jeg kiggede på.

26. des og 27. des benyttede Logi og jeg Remiseparken sammen med Loftur, mormor og morfar hvor gederne fik spaghetti og vi gyngede og cyklede en del.

28. des var vi forbi en butik, fik pølser og legede på løbehjul og legemotorcykel på en lejeplads tæt på sammen med Logis mor og Loftur.

29. des tog vi i DGI byen sammen med bedstemor og bedstefar til at lege i svømmebassinet. Om aftenen fik vi gæster og blandt dem var Logis veninde Birta, hende legede vi meget med.

30. des blev det Capella play i Fields derefter mødte Logi Mattias til fodbold men jeg var så træt jeg hyggede hjemme sammen med Loftur i stedet for.

31. des tog alle drengene, jeg, Logi, Loftur, far og farfar til at købe fyrværkeri som vi affyrede om aftenen. nytårsaften var masser af sjov hvor Logi, jeg og Logis mor dansede og vi fik alle sammen en fjollet hat, min var lidt for stor. Stakkels Loftur kastede op 3 gange i løbet af aftenen og kunne ikke spise noget men når midnat nærmede sig havde han det meget bedre og var klar til at spise kransekage sammen med os og fjolle lidt med de sjove ting vi havde købt til anledningen.

1. jan hyggede vi rigtig meget med mormor og morfar hvor vi spillede spil, så film og læste bøger.

2. jan sagde vi farvel til mormor, morfar og moster og derefter pakkede vi julen ned.

3. jan tog vi så i Magasin med Logis mor og far og derefter på besøg hos Logis ven Arnar og hans familie. Vi endte med at spise sammen med dem og så var det tid til at forberede sig for hverdag igen.

 

Logis familie er utrolig taknemlig for den dejlige tid sammen med mig. De kommer alle sammen til med at savne mig rigtig meget og håber 0.X passer godt på mig for dem J

 

Kram, Logi og Snus

3. January 2010 - 21:16

 
 

Jólasveinninn kemur í kvöld

Bræðurnir eru að deyja úr spenningi yfir gestunum sem koma færandi hendi næstu nætur. Logi valdi þann skó sem hafði "stærstu holuna" því það þarf jú að vera pláss fyrir stóru gjafirnar frá jóla. Ekki nóg með það heldur leyfir hann Lofti ekki að velja sjálfum skó því Loftur valdi ekki skó með nógu stórri "holu". Logi gekk svo langt að tilkynna bróður sínum að ef hann setti ekki skóinn með stóru holunni í gluggann fengi hann sko bara kartöflu í skóinn. Sá litli er samt ekkert að láta ráðskast með sig og setti þann sem hann valdi útí glugga við hliðiná þeim sem Logi valdi handa honum, hver veit kannski fær hann þá bara stóra og litla gjöf?

Logi ætlar núna að þykjast sofa til að sjá Jóla þegar hann setur í skóinn.

Erum að fara í jólaboð til Katrin á morgun og á sunnudaginn ætlar Logi að keppa á fótboltamóti á meðan Loftur og mamma skella sér í piparkökubakstur til Elíönu.

Hilsen!

11. December 2009 - 19:15

 
 

Logi fékk háan hita sunnudagskvöldið og var því heima í gær til að jafna sig. Við eyddum deginum í föndur og spjall, afskaplega huggulegt. Við kláruðum næstum perludunkinn sem ég hélt að væri eilífðar eign og svo var klipt, klístrað og teiknað eins og vindurinn. Samræðurnar voru frekar skemmtilegar á meðan á föndrinu stóð:

Samræður #1

Það er nú gott að Amma Dröfn veit svona mikið um peninga því þá getur maður keypt allt sem manni langar til.

Það er gott að Afi Loftur getur lagað sófan ef að ég eða Loftur komum til að eyðileggja hann.

Það er gott að Amma Guðrún veit mikið um lýsi og allt sem gerist innan í kroppinum því við erum nebblega með svoleiðis.

Það er gott að Afi Logi veit mikið um dýr og manneskjur, sérstaklega því hann á sko hesta.

Það er gott að Pabbi veit eitthvað um vindmyllur því þær búa til rafmagn til að við getum horft á sjónvarpið.

Það er líka gott að þú ert svona góð að perla mamma.

En eins gott að ég er með kennara, hún veit sko ALLT.

Samræður #2

Þegar að maður á kærustu verður maður að vera svona alsber á maganum með stóra glansandi halskede og flott hár.

Loftur var um helgina að reyna að gera greinarmun á mormor, morfar, farmor og farfar og svo spurði hann: En hvað er þá Stefán? Þannig að Stefán minn, ef internetið nær til Japan, þá mátt þú gjarnan koma með ósk um hvað þú vilt vera skilgreindur sem.

Hilsen,

Ásta Perlusérfræðingur

 

10. November 2009 - 09:28

 
 

Íslensku ţjóđsögurnar...

Lestur Íslensku þjóðsagnanna vekur fleiri spurningar en svör:

Loftur:

Hvernig kemst maður oní jörðina og heim til Kölska? (hvernig svarar maður eiginlega svona spurningu?)

Ég sá Köslka í gær mamma, hann var í bíl og keyrði inní vegginn á öðrum bíl.

Logi hefur meiri áhuga á klæðaburði Kölska, þar sem hann var til í gamla gamla daga var hann örugglega með skikkju og kannski var svona gull framaná til að festa skikkjuna saman.

 

 

1. November 2009 - 18:42

 
 

Loftur 4ra

Í gær átti Loftur loksins 4ra ára afmælið sem búið er að bíða MJÖG lengi eftir.

Hann hélt uppá afmælið fyrir vini sína í börnerumminu ásamt Sindra vini sínum og svo býður hann leikskólanum heim á mánudaginn næsta þegar að vetrarfríið er yfirstaðið.

Þeir bræður bökuðu súkkulaðiköku, kanilsnúða og ostaköku með hjálp mömmu gömlu og svo sá pabbi um skreytingar eins og venjulega. Yfir bakstrinum var ýmislegt spjallað, það kom meðal annars fram að afi Loftur er fjollet, afi Logi er smá fjollet en líka góður og ömmurnar eru góðar. Ef að Loftur þyrfti að kyssa einhverja í leikskólanum þá mundi hann vilja kyssa Vera, en hann vill samt ekki kyssa neina. Logi er búinn að prófa að kyssa Karoline í bekknum sínum. Svo fékk mamma koss frá Loga og ánægð spurði hún að tilefninu, Logi svaraði þá: mig langaði bara svo að prófa að kyssa svona gammel kone!!!!!!!!

Loftur var mjög afslappaður yfir þessu umstangi og veisluhöldum en Logi var svo spenntur fyrir hönd bróður síns að foreldrarnir voru við það að reyta allt hár af hausnum á sér. Spenningurinn og orkan sem leynist í þeim búk var á hæsta stigi.

Á leiðinni heim úr veislunni spyr Loftur svo hvort að nú sé hann ekki orðinn 5 ára þar sem 4ra ára afmælið sé búið. Nú tekur við heilt ár af: hvenær verð ég svona? og fimm puttar á lofti... Þannig byrjaði einmitt dagurinn í dag :)

Í dag var Loga boðið í heimsókn á leikskólann svo þeir bræður hlökkuðu til að eyða deginum saman þar. Það var legetøjsdag í dag og Loftur var búinn að fá svo mikið fínt dót í afmælisgjöf að hann gat alls ekki ákveðið hvað mátti koma með í þetta skiptið. Hann var búinn að skipta um skoðun 17 sinnum og endaði svo á því að fá gamalt dót lánað hjá Loga því þessi ákvörðun var hreinlega of erfið.

Vonum að dagurinn hans Þorvaldar Skúla sé jafn góður og dagurinn hans Lofts í gær.

Hilsen,

L&L

12. October 2009 - 09:55

 
 

Brúđkaupsferđ mömmu og pabba

Þessi pistill er skrifaður í þriggja tíma hraðlestarferð á milli Avignon og Paris flugvallar og á flugvellinum.

 

Ferðin byrjaði áhugavert miðvikudaginn 24. júní með því að Arnar mætti heim úr vinnu korteri fyrir brottför, flugvélinni seinkaði og lestinni seinkaði og því náðist þetta og allt í gúddí :) Hraðlestin keyrði svo bara á 340 km/h í staðinn fyrir 330 km/h og kom því á réttum tíma í LYON um 23 leitið. Í Lyon beið okkur einkabílstjórinn Marc Fontoynont sem keyrði með okkur rúnt um Lyon og sýndi okkur allt það merkasta og endaði bíltúrinn inná hótelherbergi í mjög sætu og vel staðsettu hóteli. Við skelltum okkur strax í drykk á lítilli sætri göngugötu og mannlífið var hresst á miðvikudagskvöldi/nóttu.

Fimmtudagurinn var tekinn tiltökulega snemma og eftir góðan og mikinn morgunmat (Arnar þurfti alltaf að borða örugglega fyrir 11 evrurnar sínar) þá skelltum við okkur á musée des Miniatures et Décors de Cinéma, mjög töff safn. Svo röltum við aðeins um sætar litlar verslunargötur og kíktum inní litlar og krúttlegar búðir. Næst tókum svo stefnuna upp hæðina (Fourviére, hæðin heilaga) sáum Rómverkst útileikhús (Théatres Gallo-romans), Kirkjuna Notre-Dame de Fourviére, litla Effel turninn og frábært útsýni yfir borgina. Röltum svo niður, Ásta naut útsýnisins og Arnar naut þess að hlusta á Örn með öðru eyranu. Fengum okkur Crépes í hádegismat og trítluðum til baka á hótelið. Marc sótti okkur um 2:30 til að fara á Paul Bocuse Research center þar sem rannsóknir beinast að skynjun, mat og hospitality. Fengum klukkutíma túr um skólann og rannsóknarstofuna. Eða allavega Ásta, Arnar hlustaði líka á Örn. Eftir skemmtilega heimsókn lá leiðin á ENTPE rannsóknarstofuna og við fengum að sjá þrívíddaraðstöðuna, gervihimininn og litaendurgjafa aðstöðuna. Því næst var skellt sér á heimili Fontoynont fjölskyldunnar þar sem Fred og Alex buðu okkur upp á frábæran Franskan málsverð. Fyrst fengum við fiskiböku (Quenelle) með tveim tegundum af fiski í. Næst fengum við sallat með mjög góðri og áhugaverðri dressingu ásamt osti frá Swissnesku landamærunum og í desert var Sítrónubaka (og við fengum afgangana með heim). Með þessu var drukkið lokal rauðvín frá Cote du Rhone. Við færðum þeim hoppandi frosk og íslenskt nammi sem bæði vakti mikla lukku. Eftir kvöldmat fóru Marc og Fred með okkur í bíltúr til að skoða fleiri áhugaverða hluti í Lyon með smá stoppi til að hitta lokal Berkley klúbbinn (nýstofnað Lyon félag) þar hittum við einn maka, einn á eftirlaunum, einn sem átti sér draum um að komast í Berkley og einn buissness kall, hress hópur! Svo var rúntað og Marc og Fred kvödd. Við kíktum aðeins á næturlífið sem var ekkert verra á fimmtudagskvöldum.

Föstudagurinn byrjaði með Lestarferð til Avignon og túristabærinn tekinn út þann daginn. Ágætis hótel með mjög hjálpsömu afgreiðsluliði. Skoðuðum Brúnna sem fer hálfa leið yfir Rhone (Pont Saint-Bénézet), torg páfana (Palais des Papes) og svo versluðum við eitt stykki brúðarkjól á útsölu. Kjóllinn uppfyllti hreinlega öll skilyrðin, 1. hægt að dansa í honum, 2. felulitur fyrir bletti sem koma við borðhald og 3. bara nokkuð sætur. Fengum okkur Sushi í kvöldmat og kíktum aðeins á barina í kring.

Laugardag sváfum við út og leigðum okkur svo scooter eftir að Arnar loksins hætti að borða morgunmat. Við tókum vitlausa túristann á þetta og keyrðum inn litla sæta einkavegi til að skoða vínekrur og fallegt útsýni. Enduðum ferðina okkar í gullfallegum bæ og auðvitað þurfti þá myndavélin að vera batteríislaus. L'isle Sorgue var grandskoðaður, lítil falleg á sem rann gegnum bæinn og búðirnar voru að miklu leiti verkstæði/búð og föndurkúrsar voru líka inní búðunum ótrlúlega skemmtilegt. Arnar verslaði sér hatt til að fullkomna brúðkaupsdressið sitt og Ásta verslaði mynjagripi og naut þess að skoða litlar sætar búðir. Á heimleiðinni komumst við að því hversvegna scooterleigan mælti með litla sæta sveitaveginum þegar að við vorum allt í einu komin á hraðbraut á litla scooternum sem komst uppí 50 km/h. Þá var nú bara að snúa við og taka sömu leið til baka og njóta lífsis. Á scooterleigunni var líka hægt að leigja hjól og því gripum við sitthvort með okkur á leiðinni heim og skelltum okkur svo út á lífið því það var rosa GAY CIRCUS in town! Á leiðinni heim lentum við í froðuspreyi sem sprautað var yfir allt og alla. Borðuðum Franskan mat á litlu sætu torgi og hlustuðum á massíva franska hommatónlist. Röltum svo um bæinn til að skoða næturlífið og enduðum út við ánna (Rhone) í picknic.

Sunnudagur: Arnar 29 ára. Hjóluðum 70 km um Provence með tveggja tíma stoppi í Pont du Gard. Við vorum að sjálsögðu klædd í sundföt til að fara að synda á áfangastaðnum og tókum með okkur hvítvín, foi gras, franska pulsu, geitaost og kirsuber. Gleymdum aðeins að taka með vatn. Ferðin byrjaði vel með því að Arnar nam land á Eyju sem við nefndum Isla de Arnar, þar hjóluðum við í gegnum steina (EKKI möl) og gras sem náði upp að bringu. Þegar við höfðum hjólað eyjuna hans Arnars á enda tókum við ákvörðun um að nú væri tími til að halda áfram því sem eftir var af þessum 70 km. Á leiðinni fundum við bar sem við gátum verslað 3 lítra af vatni sem komu að góðum notum og svo hjóluðum við líka framhjá grænmetissölu sem við versluðum heimsins bestu ferskjur og tómata. Eftir erfiða leið um hlíðarnar í Provence komumst við loksins á leiðarenda til Pont du Gard. Það skal tekið fram að Arnar hjólaði upp ALLAR hæðirnar, Ásta gat það ekki þrátt fyrir ungan aldur. Í stoppinu borðuðum við íþróttalega matinn okkar og syntum í ánni Gard. Eftir átta tíma ferð komumst við loksins heim á hótel og örmagna íþróttamennirnir megnuðu varla að skila hjólunum og hvað þá borða svo það var troðið í sig pizzu, náð í nammi og ís uppá hótel og svo dóu hjólreiðamennirnir brendir og sælir.

Mánudagurinn var tekinn snemma, enda farið óvenju snemma að sofa kvöldið áður. Áttum pantaðan bíl og komumst loks af stað þegar að Arnar var búinn með morgunathöfnina að éta hótelið á gat. Við áttum pantaðan bíl í bænum og örkuðum um bæinn í 30 mínútur í 30 stiga hita til að finna réttan stað. Þegar þangað var komið var okkur tilkynnt að þó maður pantaði í bænum þyrfti maður alltaf að sækja hjá lestarstöðinni og því tók við rómantísk ganga í annan hálftíma í 30 stiga hita til að nálgast bílinn. Ekki var leigubílunum fyrir að fara! Loksins fengum við lítinn sætan citroen til að ferja okkur til Uzés en við komum þá á heitasta tímanum um 40 gráður en röltum aðeins um bæinn og versluðum smá gjafir og svona. Meikuðum ekki hitann meir enda Ásta líka skaðbrennd á kálfunum og forðuðum okkur í loftkældan bílinn. Rúntuðum um borgirnar í kring, Beaucaire, Tarascon og stoppuðum svo í æðislegum bæ sem heitir Les Baux-de-Provence þar sem við þurftum að klifra upp margar tröppur til að komast inní lítinn snyrtilegan og rosalega skemmtilegan túristabæ. Fyrsta búðin sem við fórum inní var hálfgert safn líka fyrir ilmolíur og þesskonar, smökkuðum líka ilmolíute, mjög áhugavert. Bærinn var allur í brekkum og litlum þröngum götum með búðum sem seldu bæði túristadót en líka málverk eftir lokal listamenn og skartgripi. Í bænum var Höll en við meikuðum ekki að vera meira utandyra sökum brunarústa á líkama og sjáum hana bara næst. Svo tókum við stefnuna heim á leið með viðkomu í bænum Saint-Rémy-de Provence. Arnar skilaði bílnum og Ásta fór að versla leggings til að hlífa kálfunum sem voru glóandi. Tókum afmælisdinnerinn hans Arnars á nýtískulegum frönskum stað sem hét Arts & Gourmet, æðislegur staður með frábærum mat.

Þriðjudagurinn er svo Lestarferð til París og þaðan svo flug heim til Köben. Í öryggisskoðuninni á flugvellinum í París fékk Ásta tilboð um að skifta út mannsefni, hún sagðist hafa samband við öryggisvörðinn ef hún mundi eitthvað skipta um skoðun, en só far só gúd...Arnar tók þá ákvörðun, við fáum okkur mjög hefðbundna giftingahringa.

 

Æðisleg ferð!

 

30. June 2009 - 21:56

 
 

Íslandsför og flutningar framundan

Það er talið niður (oft á dag) hvað það eru margir dagar þar til við förum til Íslands. Tilhlökkun á hæsta stigi og pjakkarnir geta ekki beðið eftir að komast í tæri við ömmur sínar og afa.

Það eru búnir að vera nokkrir góðir frídagar upp á síðkastið og þeirra á milli er farið í fritids og leikskólann. Logi er í góðum hópi þarna á fritids og við ætlum á sommerfest á föstudaginn og svo hoppum við beint þaðan í flugvélina til íslands. Loftur heldur uppteknum hætti og sjarmerar nýju dömurnar á leikskólanum. Þessar "gömlu" eru sko ekkert sætar, bara "nýju" stelpurnar.

Annars er Logi alltaf jafn stríðinn, Loftur líka stríðinn en aðallega dramatískur. Yndislegir strákar sem gaman er að umgangast.

Loftur kom með gullkorn í gær: Vá mamma þú ert með svona ROSA ROSA ROSA ROSA ROSA ROSA stóran rass, þú þarft EKKERT að halda þér þegar þú pissar í klósettið...(ég hélt hann hefði komist í facebook myndasafnið)

En plön framundan eru að skella sér til klakans á föstudagskvöldið, drengirnir fara á fjölskyldumót á meðan að foreldrarnir tjútta í bryllupi hjá Röggu Dís og Úlfari. Foreldrarnir fara svo til baka á þriðjudaginn til að vinna og flytja. Amma Guðrún og Afi Logi ætla að hjálpa til við flutningana á meðan drengirnir verða í góðu yfirlæti hjá Ömmu Dröfn og Afa Lofti. Svo ætla foreldrarnir að skella sér til frakklands í lok mánaðarins áður en fjölskyldan sameinast og þriggja vikna dvöl á klakanum tekur við.

Þegar heim kemur í lok Júlí munum við ekki lengur lifa í synd í nýrri íbúð og skólaganga frumburðarins að skella á.

Hilsen,

Ritarinn

6. June 2009 - 17:00

 
 

Kósí dagur

Logi fór að keppa í fótbolta í morgun, þeir félagarnir voru rasskelltir af mótherjum sínum.

Loftur er hálf slappur með einhverja kvefpest og því ákvað mútter að læra heima í dag til að hægt væri að halda pjakkanum innandyra.

Dagurinn var hinn rólegasti og bestasti. Lært, byggt, teiknað og horft yfir daginn og svo var gripið í spil um kvöldið. Það fer ekki á milli mála hver er heppnastur í ástum á þessu heimili þar sem mamma og pabbi töpuðu í öllum spilunum (svartapétri, slönguspili og blöðruspilinu), þó tapaði pabbi oftast, það skal skýrt tekið fram. Loftur var oftast hálf úti að aka og kastaði tengingum útum öll gólf, Logi reyndi allt sem hann gat til að svindla og pabbinn var bara með almenn leiðindi og pirring, gera fyrir ungu herramennina við lítinn fögnuð og svona. Heldur betur rugl spilakvöld þetta. En afskaplega hamingjusamir sigurvegarar sem voru að hátta og fengu að sofna uppí hjá mömmu og pabba.

Planið var eiginlega að horfa á Eurovision með stubbunum en þeir verða sofnaðir þegar að herlegheitin byrja.

Svona almennt þá er Logi mjög sáttur við Fritids og kann víst orðið vel að meta "pigemusik" og Loftur er orðinn ástfanginn (fáum allavega mikið að heyra um hana Veru sem var að byrja í leikskólanum). Logi fór líka í afslutningsfest á leikskólanum í gær og það var víst mikið fjör, foreldrum bannaður aðgangur. Mamman var eitthvað að efast um hvursu alvarleg veikindi sonarins voru.. engin hiti og því kannski ekki alvöru veiki, en þegar að hann hóaði í móður sína til að koma að aðstoða hann við tiltekt í herberginu sínu, sannfærðist sú gamla med det samme. Loftur er nebblega sá sem hverfur sporlaust þegar að orðið tiltekt heyrist nefnt, það er að segja þegar að hann er fullfrískur. Spurning um að redda fleiri pestum til að halda íbúðinni í betra ásigkomulagi...

Teiknihæfileikar þróast með tímanum og í augnablikinu teiknar Logi mikið hús eða kastala með allri familíunni, og mamma er yfirleitt prinsessa. Loftur teiknar "levende kartofler" eins og Logi kallar það, svona hring með andliti og svo koma fótar og hendur út úr hringnum. Þegar að pabbi er teiknaður er hann mjög loðinn og fær hann alltaf "mudder" (drullu) á höfuðið og svo er hlegið hátt prakkarahlátri...

Jæja kveð að sinni,

Ritarinn

 

16. May 2009 - 20:42

 
 

Rútínan ađ lćrast ţegar hin gamla tekur viđ...

Já nú er pabbi á leiðinni heim og við sem vorum rétt svo að venjast þessari nýju rútínu hérna þrjú í kotinu.

Við erum samt öll farin að sakna pabba svo við lifum það alveg af þó að rútínan breytist aftur. Erum bara fegin að við komumst nokkurn vegin klakklaust í gegnum þetta þrátt fyrir að mamma væri smá ga ga þarna í byrjun og gleymid m.a. að setja á pungana hjálm þegar að verið var að hjóla í leikskólan og svona skemmtilegheit.

Loftur tók uppá því að eiga aðra fjölskyldu sem leyfir honum allt sem þessi fjölskylda leyfir ekki. Loftur á semsagt heima í bláu húsi hjá Kollegíinu með mömmu, pabba og litla bróður sem heitir Logi. Þar fær hann að horfa á sjónvarpið fyrir leikskóla, borða kex í morgunmat og hjóla alveg sjálfur í leikskólan. Það er gott að hann fær útrás fyrir þessar óskir sínar á einhvern hátt. Logi reynir að draga bróðir sinn niður í raunveruleikan með því að segja honum að hann sér að ljúga og þá kemur sár gratur. Held að Loftur viti ekkert hvað er að ljúga en veit að það er mjög slæmt...

Annars er mamma alveg að deyja úr spenningi að komast út af heimilinu og í vinnuna á morgun en þá er einmitt föstudagurinn heilagi, disney show með nammiskál og svo sofnar Loftur yfirleitt yfir X factor á meðan að Logi pínir sig til að vaka. Við höldum núna með Muhamed þar sem allir hinir sem við héldum með eru dottnir út. Loftur var sérstaklega hrifin af Asian Sensation (draumur að heyra barnið segja nafnið á hljómsveitinni) og Logi hélt með Lucas, Muhamed og Asian Sensation, því þeir voru allir mjög töff.

Jæja nú ætlar þessi gamla að fara að sofa, það tekur svo á að vera svona einstæð.

Hilsen!

 

19. March 2009 - 19:19