Logi og Loftur
 

Gestabók

Matta

Hæhæ skemmtilegar myndir :) Alltaf svo sætir. Vildi minna þig á Ásta að kíkja á síðuna okkar stelpnanna. Ýmislegt varðandi köbenferðina okkar í sumar og fleira (kannski að kommenta). Einnig sendi Þuríður á þig mail á g-mailið um köbenreisuna.
xx
m.

Skrifaš žann 24. April 2007 16:04.

Haukur frændi

Takk kærlega fyrir afmælisgjöfina og ég vonast til að sjá ykkur sem fyrst

Kv Haukur frændi

Skrifaš žann 18. April 2007 22:41.

Freyja og co

Skemmtilegar nýju myndirnar..virðist hafa verið ansi skemmtileg sveitaferð. Ótrúlega sjarmerandi kallinn á klósettinu og flottur dans hjá frúnni:)

Ha det

Skrifaš žann 18. April 2007 20:49.

Ragga Dis

Alltaf gaman að sjá skemmtilegar myndir af ykkur. Gaman að sjá hvað Loftur er orðin stór. Hafið samband ef að þið eigið leið til Íslands.
kv. Ragga Dis

Skrifaš žann 16. April 2007 20:03.

amma drofn

Takk fyrir myndina kútarnir mínir, hún er frábær. Búin að setja hana á réttan stað.

Knús og kossar
amma Dröfn

Skrifaš žann 20. March 2007 17:24.

Halldóra frænka

hæ kæra fjölskylda flottar myndir af ykkur
hvernig gengur með strákana af hverju
látið þið ekki nýjar videó myndir af þeim
þeir eru svo sætir.

Skrifaš žann 19. March 2007 13:29.

Magga og co.

Halló, stóra vísitölufjölskylda,
mig langar nú bara til að nýta tækifærið og þakka kærlega fyrir fallega jólakortið sem við fengum svo óvænt.
Annars er gaman að sjá hvað Logi er líkur mömmu sinni á myndinni: "konur eru grimmar", svo finnst mér ofsalega gaman að fylgjast með Lofti sama taktík og hjá honum Hrafnkeli mínum jafnaldra hans;)
Hafið það gott,
Knús í krús

Skrifaš žann 12. March 2007 01:10.

Tómas Bogi

Rosalega erum við heppin að það verða tvær ofurhetjur á svæðinu þegar við mætum!!

Skrifaš žann 19. February 2007 21:20.

Þuríður

Æðislegir spiderman búningarnir, vildi að ég ætti einn svona fyrir öskudaginn ;)

Skrifaš žann 19. February 2007 17:36.

Heiða Hannesar (í Sviss;))

við nánari skoðun sé ég að þið eruð vissulega gríðarlega líkir honum afa ykkar Lofti *hóst hóst*;) Gaman að sjá myndir af ykkur:)

Skrifaš žann 17. February 2007 09:07.

Ammaguðrún og Afilogi

Elsku gullmolarnir okkar.
Mikið eruð þið flottir köngulóarmenn! Þið komið til með að taka ykkur vel út á öskudaginn og ykkur verður vafalaust ekki skotaskuld úr því að slá köttinn úr tunnunni.
Biðjum að heilsa mömmu og pabba ykkar. Hjartans kveðjur amma og afi

Skrifaš žann 15. February 2007 23:16.

Bimba

Hæ strákar, mikið eruð þið æðislegir...myndböndin af ykkur eru frábær!!! Hlakka rosalega til að sjá ykkur þegar ég kem í heimsókn :)
Kv. Bimba "frænka"

Skrifaš žann 12. February 2007 02:52.

Afi Loftur

Sælir piltar og takk fyrir síðast.
Við söknum ykkar sárt, en Tómas Bogi linar þjáningarnar og skerpir heyrnina !! (fjölskylduleyndarmál )
Mikið hlýtur hún Heiða að vera með lélegan skjá. Við afi Logi erum alveg sannfærðir um að þið líkist okkur öfunum afar mikið. Sko: afi Logi < Logi Freyr. Mjög líkt. afi Loftur > Loftur Þór. Ekki ólíkt. Annars er allt í lagi að líkjast mömmu, hún er nú aldeilis frábær mamma og hugguleg eftir því. Og dugnaðurinn.......... Það er bara ras.... !
Kær kveðja og kossar frá ömmu Dröfn og afa.

Skrifaš žann 11. February 2007 20:57.

Heiða Hannesar (í Sviss;))

Hæhæ kæra fjölskylda, rakst á linkinn í gestabókinni hjá honum frænda ykkar og varð að sjálfsögðu að kíkja hérna:) Er ekki frá því að hún mamma ykkar eigi aðeins í ykkur;) Alla veganna, voða gaman að sjá hvað strákarnir ykkar dafna vel, sem og þið Arnar og Ásta;) Danmörk á greinilega vel við ykkur. Kærar kveðjur sendi ég frá Sviss

Skrifaš žann 3. February 2007 20:43.

Halldóra frænka

hæ Logi og Loftur hlakkar til að sjá ykkur
þegar þið komið á Frónið ég sakna ykkar

ykkar frænka Halldóra

Skrifaš žann 25. January 2007 14:56.

Blesugrófin kallar

Krípí, vonandi tekst Arnari og Loga að skrúfa á sig hausinn fyrir heimferð. Munið að herða allar skrúfurnar vel, góða ferð -Nihah.

Skrifaš žann 22. January 2007 16:54.

Gummi og Ólöf

Gleðileg jól og gleðilegt ár!
Takk kærlega fyrir jólakortið. Vonandi sjáumst við eitthvað á þessu nýja ári.
kv Lufsa og Gumms

Skrifaš žann 9. January 2007 12:53.

Ingunn

Skemmtilegar nýju myndirnar - sérstaklega þessi af pabba ykkar á kamrinum;) Hlakka til að sjá ykkur, fer nú vonandi að styttast í það!!

Skrifaš žann 7. January 2007 20:03.

Bjarki og Bryndís

Takk fyrir jólakortið, kæra fjölskylda. Einstaklega myndarlegir drengir og foreldrarnir að sjálfsögðu ekki síðri. Við höfum nú legið yfir þríhyrningamælingum og sannreynt það að það er jú ekkert svo langt á milli Árósa og Kaupmannahafnar. Fullt hús stiga fyrir það! Við lofum að kíkja í heimsókn næst þegar við komum yfir og tökum af ykkur loforð um hið sama.

Sjáumst fljótlega!

Skrifaš žann 29. December 2006 13:54.

Pat og Wendy Starker

The children are wonderful! Wish we understood Icelandic.

Skrifaš žann 22. December 2006 21:27.

Magga og Hrafnkell

Hæ hæ,
gaman að kíkja á ykkur, Logi er ekkert smá flottur í superman hlýrabol og Loftur geggjaður í grænröndótta gallanum, er hægt að fá svona í fullorðins??
Jólakveðjur frá Boston,
Magga og jólasveinarnir

Skrifaš žann 21. December 2006 03:38.

Freyja, Höddi og Ralala

Hæ hæ sætu bræður!!

Ásta getur þú sent mér heimilisfangið ykkar á maili sem fyrst svo ég geti sent ykkur jólakort:)

freyjaj@landspitali.is

Skrifaš žann 18. December 2006 19:45.

Nonni og Ingibjörg.

Til að byrja með, takk fyrir síðast. Alltaf gaman að sjá svona góða og vel klippta stráka. Bara flottastir.
Að lokum til hamingju með þessa nýju jólalegu síðu. Hundrað sinnum betri en sú gamla. Kveðja I+N

Skrifaš žann 13. December 2006 22:10.

Afilogi og Ammaguðrún

Svakalega er klippingin hans Lofts þórs flott. Var Dóri rakari í Köben eða hvað? Logi Freyr er líka flottastur.
Kveðjur og knús frá ömmu og afa

Skrifaš žann 10. December 2006 23:56.

Þuríður

Sælir strákar, svakalega eru þið orðnir stórir og myndarlegir guttar, verður sko gaman að sjá ykkur næst þegar komið á klakkann.
Hér er allt á fullu í próflestri og Eirberg er fullt af skíthræddum stelpum sem eru að fara í lífeðlisfræði próf hjá afa ykkar hi hi. Maður er sko heppin að vera búin með það ;)
Hlakka mikið til að sjá ykkur og bið að heilsa gömlu.
kv. Þuríður

Skrifaš žann 5. December 2006 22:44.

amma Dröfn

Elsku Logi, amma er bara komin í jólaskap að horfa á myndbrotið af þér syngja svona fallega jólalögin. Gaman væri að fá að sjá meira af svona videó tökum.
Knús og kossar frá ömmu og afa í Kópavoginum

Skrifaš žann 4. December 2006 09:08.

Ester

til hamingju með drengina báða :)

Skrifaš žann 30. November 2006 09:53.

Freyja og Ragnheiður Vala

Til hamingju með afmælið stóri gormur. Vá hvað kökurnar voru flottar...nammi nammi.

Knús frá okkur

Skrifaš žann 23. November 2006 23:00.

Halldóra frænka

hæ strákar flottar myndir hjá ykkur vá hvað þið eruð stórir komið þið um Jólin og líka á áramótin ég sakna ykkar

Skrifaš žann 23. November 2006 19:38.

Ragga Dís

Hæ Logi
Innilega til hamingju með daginn stóri strákur.
kv. Ragga Dís, Úlfar og Úlfheiður

Skrifaš žann 23. November 2006 18:39.

1 2 3 4 5