
Loftur:
Spurði Albert vin sinn hvort hann mætti koma heim með honum af leikskólanum. Albert sagði að hann væri velkominn svo Loftur skellti sér í skóna og drífur sig út með Albert og Au Pairinum hans. Arnar er mættur að sækja Loft þegar mamma hans Albert hringir í leikskólann og tilkynnir auka barn heim með au pairinum. Leikskólinn var svoldið miður sín að svona gæti gerst og Loftur veit núna að það er ekki nóg að spurja fjögra ára vini sína um leyfi.
Loftur er núna á síðasta ári í leikskólanum og nýtur lífsins til hins ýtrasta. Kemur reglulega heim með nýjar gómsætar uppskriftir sem hann prófar í skóginum og þær koma oft í kjölfar spurninga sem: mamma verður maður veikur af að borða drullumall? Er það nauðsynlegt að elda snígla áður en maður borðar þá?
Logi:
Bauð mömmu sinni að vera með í klúbbinum sínum. Í klúbbinum eru Logi, Mathias, Lasse og mamma. Þessi klúbbur litar fallegar myndir, selur þær og ætlar svo að biðja Arbejdsmænd um að byggja klúbhús fyrir ágóðan. Veit ekki alveg hvað félagarnir segja þegar Logi tilkynnir að mamma hans sé nú orðin klúbbmeðlimur ;D
Logi er að klára 6 ára bekk og er voða ánægður í skólanum. Hann lærir sitthvað annað en að lesa og skrifa því hann veltir hlutum fyrir sér sem: hvað gera börne lokker við börnin þegar þeir eru búnir að ná börnunum?
Logi á púka sem býr stundum í kroppinum hans. Þegar púkinn er til staðar nenna foreldrar hans lítið að hafa samskipti við hann og þegar Logi gefst upp á því að vera leiðinlegur, sendir hann púkann í partý. Púkinn reynir samt að komast aftur til hans en þar sem púkinn er pínulítill með rosalega litla fóta, tekur hann svo lítil skref að hann nær ekki Loga, sérstaklega ekki þegar hann er á hjólinu sínu. Mjög heppilegt fyrir fólk sem þarf að umgangast drenginn.
Yfirleitt eru þessir ungar yndislegir og góðir bræður með reglulegum undantekningum svo sem slagsmál og rifrildi.
Hilsen
Skrifa athugasemd