
Bræðurnir eru að deyja úr spenningi yfir gestunum sem koma færandi hendi næstu nætur. Logi valdi þann skó sem hafði "stærstu holuna" því það þarf jú að vera pláss fyrir stóru gjafirnar frá jóla. Ekki nóg með það heldur leyfir hann Lofti ekki að velja sjálfum skó því Loftur valdi ekki skó með nógu stórri "holu". Logi gekk svo langt að tilkynna bróður sínum að ef hann setti ekki skóinn með stóru holunni í gluggann fengi hann sko bara kartöflu í skóinn. Sá litli er samt ekkert að láta ráðskast með sig og setti þann sem hann valdi útí glugga við hliðiná þeim sem Logi valdi handa honum, hver veit kannski fær hann þá bara stóra og litla gjöf?
Logi ætlar núna að þykjast sofa til að sjá Jóla þegar hann setur í skóinn.
Erum að fara í jólaboð til Katrin á morgun og á sunnudaginn ætlar Logi að keppa á fótboltamóti á meðan Loftur og mamma skella sér í piparkökubakstur til Elíönu.
Hilsen!
hahah...Logi Freyr er ansi sniđugur!