Logi og Loftur
 

Logi fékk háan hita sunnudagskvöldið og var því heima í gær til að jafna sig. Við eyddum deginum í föndur og spjall, afskaplega huggulegt. Við kláruðum næstum perludunkinn sem ég hélt að væri eilífðar eign og svo var klipt, klístrað og teiknað eins og vindurinn. Samræðurnar voru frekar skemmtilegar á meðan á föndrinu stóð:

Samræður #1

Það er nú gott að Amma Dröfn veit svona mikið um peninga því þá getur maður keypt allt sem manni langar til.

Það er gott að Afi Loftur getur lagað sófan ef að ég eða Loftur komum til að eyðileggja hann.

Það er gott að Amma Guðrún veit mikið um lýsi og allt sem gerist innan í kroppinum því við erum nebblega með svoleiðis.

Það er gott að Afi Logi veit mikið um dýr og manneskjur, sérstaklega því hann á sko hesta.

Það er gott að Pabbi veit eitthvað um vindmyllur því þær búa til rafmagn til að við getum horft á sjónvarpið.

Það er líka gott að þú ert svona góð að perla mamma.

En eins gott að ég er með kennara, hún veit sko ALLT.

Samræður #2

Þegar að maður á kærustu verður maður að vera svona alsber á maganum með stóra glansandi halskede og flott hár.

Loftur var um helgina að reyna að gera greinarmun á mormor, morfar, farmor og farfar og svo spurði hann: En hvað er þá Stefán? Þannig að Stefán minn, ef internetið nær til Japan, þá mátt þú gjarnan koma með ósk um hvað þú vilt vera skilgreindur sem.

Hilsen,

Ásta Perlusérfræðingur

 

10. November 2009 - 09:28



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti