
Í gær átti Loftur loksins 4ra ára afmælið sem búið er að bíða MJÖG lengi eftir.
Hann hélt uppá afmælið fyrir vini sína í börnerumminu ásamt Sindra vini sínum og svo býður hann leikskólanum heim á mánudaginn næsta þegar að vetrarfríið er yfirstaðið.
Þeir bræður bökuðu súkkulaðiköku, kanilsnúða og ostaköku með hjálp mömmu gömlu og svo sá pabbi um skreytingar eins og venjulega. Yfir bakstrinum var ýmislegt spjallað, það kom meðal annars fram að afi Loftur er fjollet, afi Logi er smá fjollet en líka góður og ömmurnar eru góðar. Ef að Loftur þyrfti að kyssa einhverja í leikskólanum þá mundi hann vilja kyssa Vera, en hann vill samt ekki kyssa neina. Logi er búinn að prófa að kyssa Karoline í bekknum sínum. Svo fékk mamma koss frá Loga og ánægð spurði hún að tilefninu, Logi svaraði þá: mig langaði bara svo að prófa að kyssa svona gammel kone!!!!!!!!
Loftur var mjög afslappaður yfir þessu umstangi og veisluhöldum en Logi var svo spenntur fyrir hönd bróður síns að foreldrarnir voru við það að reyta allt hár af hausnum á sér. Spenningurinn og orkan sem leynist í þeim búk var á hæsta stigi.
Á leiðinni heim úr veislunni spyr Loftur svo hvort að nú sé hann ekki orðinn 5 ára þar sem 4ra ára afmælið sé búið. Nú tekur við heilt ár af: hvenær verð ég svona? og fimm puttar á lofti... Þannig byrjaði einmitt dagurinn í dag :)
Í dag var Loga boðið í heimsókn á leikskólann svo þeir bræður hlökkuðu til að eyða deginum saman þar. Það var legetøjsdag í dag og Loftur var búinn að fá svo mikið fínt dót í afmælisgjöf að hann gat alls ekki ákveðið hvað mátti koma með í þetta skiptið. Hann var búinn að skipta um skoðun 17 sinnum og endaði svo á því að fá gamalt dót lánað hjá Loga því þessi ákvörðun var hreinlega of erfið.
Vonum að dagurinn hans Þorvaldar Skúla sé jafn góður og dagurinn hans Lofts í gær.
Hilsen,
L&L
ég fer alltaf aš hlęja žegar ég hugsa um žetta frįbęra gullkorn hans Loga Freys! hahah
Veršiš endilega aš vera dugleg aš skrifa allt svona nišur žvķ minniš svķkur oft...