Logi og Loftur
 

Brúðkaupsferð mömmu og pabba

Þessi pistill er skrifaður í þriggja tíma hraðlestarferð á milli Avignon og Paris flugvallar og á flugvellinum.

 

Ferðin byrjaði áhugavert miðvikudaginn 24. júní með því að Arnar mætti heim úr vinnu korteri fyrir brottför, flugvélinni seinkaði og lestinni seinkaði og því náðist þetta og allt í gúddí :) Hraðlestin keyrði svo bara á 340 km/h í staðinn fyrir 330 km/h og kom því á réttum tíma í LYON um 23 leitið. Í Lyon beið okkur einkabílstjórinn Marc Fontoynont sem keyrði með okkur rúnt um Lyon og sýndi okkur allt það merkasta og endaði bíltúrinn inná hótelherbergi í mjög sætu og vel staðsettu hóteli. Við skelltum okkur strax í drykk á lítilli sætri göngugötu og mannlífið var hresst á miðvikudagskvöldi/nóttu.

Fimmtudagurinn var tekinn tiltökulega snemma og eftir góðan og mikinn morgunmat (Arnar þurfti alltaf að borða örugglega fyrir 11 evrurnar sínar) þá skelltum við okkur á musée des Miniatures et Décors de Cinéma, mjög töff safn. Svo röltum við aðeins um sætar litlar verslunargötur og kíktum inní litlar og krúttlegar búðir. Næst tókum svo stefnuna upp hæðina (Fourviére, hæðin heilaga) sáum Rómverkst útileikhús (Théatres Gallo-romans), Kirkjuna Notre-Dame de Fourviére, litla Effel turninn og frábært útsýni yfir borgina. Röltum svo niður, Ásta naut útsýnisins og Arnar naut þess að hlusta á Örn með öðru eyranu. Fengum okkur Crépes í hádegismat og trítluðum til baka á hótelið. Marc sótti okkur um 2:30 til að fara á Paul Bocuse Research center þar sem rannsóknir beinast að skynjun, mat og hospitality. Fengum klukkutíma túr um skólann og rannsóknarstofuna. Eða allavega Ásta, Arnar hlustaði líka á Örn. Eftir skemmtilega heimsókn lá leiðin á ENTPE rannsóknarstofuna og við fengum að sjá þrívíddaraðstöðuna, gervihimininn og litaendurgjafa aðstöðuna. Því næst var skellt sér á heimili Fontoynont fjölskyldunnar þar sem Fred og Alex buðu okkur upp á frábæran Franskan málsverð. Fyrst fengum við fiskiböku (Quenelle) með tveim tegundum af fiski í. Næst fengum við sallat með mjög góðri og áhugaverðri dressingu ásamt osti frá Swissnesku landamærunum og í desert var Sítrónubaka (og við fengum afgangana með heim). Með þessu var drukkið lokal rauðvín frá Cote du Rhone. Við færðum þeim hoppandi frosk og íslenskt nammi sem bæði vakti mikla lukku. Eftir kvöldmat fóru Marc og Fred með okkur í bíltúr til að skoða fleiri áhugaverða hluti í Lyon með smá stoppi til að hitta lokal Berkley klúbbinn (nýstofnað Lyon félag) þar hittum við einn maka, einn á eftirlaunum, einn sem átti sér draum um að komast í Berkley og einn buissness kall, hress hópur! Svo var rúntað og Marc og Fred kvödd. Við kíktum aðeins á næturlífið sem var ekkert verra á fimmtudagskvöldum.

Föstudagurinn byrjaði með Lestarferð til Avignon og túristabærinn tekinn út þann daginn. Ágætis hótel með mjög hjálpsömu afgreiðsluliði. Skoðuðum Brúnna sem fer hálfa leið yfir Rhone (Pont Saint-Bénézet), torg páfana (Palais des Papes) og svo versluðum við eitt stykki brúðarkjól á útsölu. Kjóllinn uppfyllti hreinlega öll skilyrðin, 1. hægt að dansa í honum, 2. felulitur fyrir bletti sem koma við borðhald og 3. bara nokkuð sætur. Fengum okkur Sushi í kvöldmat og kíktum aðeins á barina í kring.

Laugardag sváfum við út og leigðum okkur svo scooter eftir að Arnar loksins hætti að borða morgunmat. Við tókum vitlausa túristann á þetta og keyrðum inn litla sæta einkavegi til að skoða vínekrur og fallegt útsýni. Enduðum ferðina okkar í gullfallegum bæ og auðvitað þurfti þá myndavélin að vera batteríislaus. L'isle Sorgue var grandskoðaður, lítil falleg á sem rann gegnum bæinn og búðirnar voru að miklu leiti verkstæði/búð og föndurkúrsar voru líka inní búðunum ótrlúlega skemmtilegt. Arnar verslaði sér hatt til að fullkomna brúðkaupsdressið sitt og Ásta verslaði mynjagripi og naut þess að skoða litlar sætar búðir. Á heimleiðinni komumst við að því hversvegna scooterleigan mælti með litla sæta sveitaveginum þegar að við vorum allt í einu komin á hraðbraut á litla scooternum sem komst uppí 50 km/h. Þá var nú bara að snúa við og taka sömu leið til baka og njóta lífsis. Á scooterleigunni var líka hægt að leigja hjól og því gripum við sitthvort með okkur á leiðinni heim og skelltum okkur svo út á lífið því það var rosa GAY CIRCUS in town! Á leiðinni heim lentum við í froðuspreyi sem sprautað var yfir allt og alla. Borðuðum Franskan mat á litlu sætu torgi og hlustuðum á massíva franska hommatónlist. Röltum svo um bæinn til að skoða næturlífið og enduðum út við ánna (Rhone) í picknic.

Sunnudagur: Arnar 29 ára. Hjóluðum 70 km um Provence með tveggja tíma stoppi í Pont du Gard. Við vorum að sjálsögðu klædd í sundföt til að fara að synda á áfangastaðnum og tókum með okkur hvítvín, foi gras, franska pulsu, geitaost og kirsuber. Gleymdum aðeins að taka með vatn. Ferðin byrjaði vel með því að Arnar nam land á Eyju sem við nefndum Isla de Arnar, þar hjóluðum við í gegnum steina (EKKI möl) og gras sem náði upp að bringu. Þegar við höfðum hjólað eyjuna hans Arnars á enda tókum við ákvörðun um að nú væri tími til að halda áfram því sem eftir var af þessum 70 km. Á leiðinni fundum við bar sem við gátum verslað 3 lítra af vatni sem komu að góðum notum og svo hjóluðum við líka framhjá grænmetissölu sem við versluðum heimsins bestu ferskjur og tómata. Eftir erfiða leið um hlíðarnar í Provence komumst við loksins á leiðarenda til Pont du Gard. Það skal tekið fram að Arnar hjólaði upp ALLAR hæðirnar, Ásta gat það ekki þrátt fyrir ungan aldur. Í stoppinu borðuðum við íþróttalega matinn okkar og syntum í ánni Gard. Eftir átta tíma ferð komumst við loksins heim á hótel og örmagna íþróttamennirnir megnuðu varla að skila hjólunum og hvað þá borða svo það var troðið í sig pizzu, náð í nammi og ís uppá hótel og svo dóu hjólreiðamennirnir brendir og sælir.

Mánudagurinn var tekinn snemma, enda farið óvenju snemma að sofa kvöldið áður. Áttum pantaðan bíl og komumst loks af stað þegar að Arnar var búinn með morgunathöfnina að éta hótelið á gat. Við áttum pantaðan bíl í bænum og örkuðum um bæinn í 30 mínútur í 30 stiga hita til að finna réttan stað. Þegar þangað var komið var okkur tilkynnt að þó maður pantaði í bænum þyrfti maður alltaf að sækja hjá lestarstöðinni og því tók við rómantísk ganga í annan hálftíma í 30 stiga hita til að nálgast bílinn. Ekki var leigubílunum fyrir að fara! Loksins fengum við lítinn sætan citroen til að ferja okkur til Uzés en við komum þá á heitasta tímanum um 40 gráður en röltum aðeins um bæinn og versluðum smá gjafir og svona. Meikuðum ekki hitann meir enda Ásta líka skaðbrennd á kálfunum og forðuðum okkur í loftkældan bílinn. Rúntuðum um borgirnar í kring, Beaucaire, Tarascon og stoppuðum svo í æðislegum bæ sem heitir Les Baux-de-Provence þar sem við þurftum að klifra upp margar tröppur til að komast inní lítinn snyrtilegan og rosalega skemmtilegan túristabæ. Fyrsta búðin sem við fórum inní var hálfgert safn líka fyrir ilmolíur og þesskonar, smökkuðum líka ilmolíute, mjög áhugavert. Bærinn var allur í brekkum og litlum þröngum götum með búðum sem seldu bæði túristadót en líka málverk eftir lokal listamenn og skartgripi. Í bænum var Höll en við meikuðum ekki að vera meira utandyra sökum brunarústa á líkama og sjáum hana bara næst. Svo tókum við stefnuna heim á leið með viðkomu í bænum Saint-Rémy-de Provence. Arnar skilaði bílnum og Ásta fór að versla leggings til að hlífa kálfunum sem voru glóandi. Tókum afmælisdinnerinn hans Arnars á nýtískulegum frönskum stað sem hét Arts & Gourmet, æðislegur staður með frábærum mat.

Þriðjudagurinn er svo Lestarferð til París og þaðan svo flug heim til Köben. Í öryggisskoðuninni á flugvellinum í París fékk Ásta tilboð um að skifta út mannsefni, hún sagðist hafa samband við öryggisvörðinn ef hún mundi eitthvað skipta um skoðun, en só far só gúd...Arnar tók þá ákvörðun, við fáum okkur mjög hefðbundna giftingahringa.

 

Æðisleg ferð!

 

30. June 2009 - 21:56



Athugasemdir

AmmaGuðrún og Afilogi

MJÖG skemmtileg lesning. Þið virðist hugfangin af Frakklandi og gaman er að ferðin heppnaðist svona vel. Hlökkum til að sjá ykkur..

30. June 2009

Nafn


Texti