Logi og Loftur
 

Íslandsför og flutningar framundan

Það er talið niður (oft á dag) hvað það eru margir dagar þar til við förum til Íslands. Tilhlökkun á hæsta stigi og pjakkarnir geta ekki beðið eftir að komast í tæri við ömmur sínar og afa.

Það eru búnir að vera nokkrir góðir frídagar upp á síðkastið og þeirra á milli er farið í fritids og leikskólann. Logi er í góðum hópi þarna á fritids og við ætlum á sommerfest á föstudaginn og svo hoppum við beint þaðan í flugvélina til íslands. Loftur heldur uppteknum hætti og sjarmerar nýju dömurnar á leikskólanum. Þessar "gömlu" eru sko ekkert sætar, bara "nýju" stelpurnar.

Annars er Logi alltaf jafn stríðinn, Loftur líka stríðinn en aðallega dramatískur. Yndislegir strákar sem gaman er að umgangast.

Loftur kom með gullkorn í gær: Vá mamma þú ert með svona ROSA ROSA ROSA ROSA ROSA ROSA stóran rass, þú þarft EKKERT að halda þér þegar þú pissar í klósettið...(ég hélt hann hefði komist í facebook myndasafnið)

En plön framundan eru að skella sér til klakans á föstudagskvöldið, drengirnir fara á fjölskyldumót á meðan að foreldrarnir tjútta í bryllupi hjá Röggu Dís og Úlfari. Foreldrarnir fara svo til baka á þriðjudaginn til að vinna og flytja. Amma Guðrún og Afi Logi ætla að hjálpa til við flutningana á meðan drengirnir verða í góðu yfirlæti hjá Ömmu Dröfn og Afa Lofti. Svo ætla foreldrarnir að skella sér til frakklands í lok mánaðarins áður en fjölskyldan sameinast og þriggja vikna dvöl á klakanum tekur við.

Þegar heim kemur í lok Júlí munum við ekki lengur lifa í synd í nýrri íbúð og skólaganga frumburðarins að skella á.

Hilsen,

Ritarinn

6. June 2009 - 17:00



Athugasemdir

afi loftur

Það eru fleiri farnir að telja niður.............. Það verður fróðlegt að vita hvort við ráðum við þessa ærslabelgi og orðháka. Það verður allavega gaman hjá okkur. Hlökkum til að fá ykkur heim !

7. June 2009

Nafn


Texti