
Logi fór að keppa í fótbolta í morgun, þeir félagarnir voru rasskelltir af mótherjum sínum.
Loftur er hálf slappur með einhverja kvefpest og því ákvað mútter að læra heima í dag til að hægt væri að halda pjakkanum innandyra.
Dagurinn var hinn rólegasti og bestasti. Lært, byggt, teiknað og horft yfir daginn og svo var gripið í spil um kvöldið. Það fer ekki á milli mála hver er heppnastur í ástum á þessu heimili þar sem mamma og pabbi töpuðu í öllum spilunum (svartapétri, slönguspili og blöðruspilinu), þó tapaði pabbi oftast, það skal skýrt tekið fram. Loftur var oftast hálf úti að aka og kastaði tengingum útum öll gólf, Logi reyndi allt sem hann gat til að svindla og pabbinn var bara með almenn leiðindi og pirring, gera fyrir ungu herramennina við lítinn fögnuð og svona. Heldur betur rugl spilakvöld þetta. En afskaplega hamingjusamir sigurvegarar sem voru að hátta og fengu að sofna uppí hjá mömmu og pabba.
Planið var eiginlega að horfa á Eurovision með stubbunum en þeir verða sofnaðir þegar að herlegheitin byrja.
Svona almennt þá er Logi mjög sáttur við Fritids og kann víst orðið vel að meta "pigemusik" og Loftur er orðinn ástfanginn (fáum allavega mikið að heyra um hana Veru sem var að byrja í leikskólanum). Logi fór líka í afslutningsfest á leikskólanum í gær og það var víst mikið fjör, foreldrum bannaður aðgangur. Mamman var eitthvað að efast um hvursu alvarleg veikindi sonarins voru.. engin hiti og því kannski ekki alvöru veiki, en þegar að hann hóaði í móður sína til að koma að aðstoða hann við tiltekt í herberginu sínu, sannfærðist sú gamla med det samme. Loftur er nebblega sá sem hverfur sporlaust þegar að orðið tiltekt heyrist nefnt, það er að segja þegar að hann er fullfrískur. Spurning um að redda fleiri pestum til að halda íbúðinni í betra ásigkomulagi...
Teiknihæfileikar þróast með tímanum og í augnablikinu teiknar Logi mikið hús eða kastala með allri familíunni, og mamma er yfirleitt prinsessa. Loftur teiknar "levende kartofler" eins og Logi kallar það, svona hring með andliti og svo koma fótar og hendur út úr hringnum. Þegar að pabbi er teiknaður er hann mjög loðinn og fær hann alltaf "mudder" (drullu) á höfuðið og svo er hlegið hátt prakkarahlátri...
Jæja kveð að sinni,
Ritarinn
Ć, hvađ ţetta er notó, og strákarnir miklir jókerar sem kunna sýnist mér vel á múttu.