Logi og Loftur
 

Rútínan að lærast þegar hin gamla tekur við...

Já nú er pabbi á leiðinni heim og við sem vorum rétt svo að venjast þessari nýju rútínu hérna þrjú í kotinu.

Við erum samt öll farin að sakna pabba svo við lifum það alveg af þó að rútínan breytist aftur. Erum bara fegin að við komumst nokkurn vegin klakklaust í gegnum þetta þrátt fyrir að mamma væri smá ga ga þarna í byrjun og gleymid m.a. að setja á pungana hjálm þegar að verið var að hjóla í leikskólan og svona skemmtilegheit.

Loftur tók uppá því að eiga aðra fjölskyldu sem leyfir honum allt sem þessi fjölskylda leyfir ekki. Loftur á semsagt heima í bláu húsi hjá Kollegíinu með mömmu, pabba og litla bróður sem heitir Logi. Þar fær hann að horfa á sjónvarpið fyrir leikskóla, borða kex í morgunmat og hjóla alveg sjálfur í leikskólan. Það er gott að hann fær útrás fyrir þessar óskir sínar á einhvern hátt. Logi reynir að draga bróðir sinn niður í raunveruleikan með því að segja honum að hann sér að ljúga og þá kemur sár gratur. Held að Loftur viti ekkert hvað er að ljúga en veit að það er mjög slæmt...

Annars er mamma alveg að deyja úr spenningi að komast út af heimilinu og í vinnuna á morgun en þá er einmitt föstudagurinn heilagi, disney show með nammiskál og svo sofnar Loftur yfirleitt yfir X factor á meðan að Logi pínir sig til að vaka. Við höldum núna með Muhamed þar sem allir hinir sem við héldum með eru dottnir út. Loftur var sérstaklega hrifin af Asian Sensation (draumur að heyra barnið segja nafnið á hljómsveitinni) og Logi hélt með Lucas, Muhamed og Asian Sensation, því þeir voru allir mjög töff.

Jæja nú ætlar þessi gamla að fara að sofa, það tekur svo á að vera svona einstæð.

Hilsen!

 

19. March 2009 - 19:19



Athugasemdir

Ingunn

Í gær hélt Logi með Alien Beat Club en sagði að Muhamed væri saa sej!!

29. March 2009

Heiður

ég þarf greinilega að fara að dánlóda þessum danska x-factor til að skilja umræðurnar...

29. March 2009

Bimba

Hæ kæra fjölskylda! Ég kem nú hingað inn reglulega og fylgist með ykkur en gleymi svo alltaf að kvitta fyrir innlitið (helv.. dóni!) Ekkert smá sem drengirnir blómstra og þú Ásta mín lítur ekkert smá vel út!! Hlakka endalaust til að sjá ykkur í sumar.

Kv. Bimba

16. April 2009

Nafn


Texti