
Mamma og pabbi klikkuðu alveg á jólakortunum þessi jól og þar af leiðandi neyðist ég víst til að senda ykkur öllum kveðju hér á netinu:
Kæru vinir
Gleðileg jól og farsælt komandi ár!
Takk fyrir allar góðu stundirnar þessa fyrstu 9 mánuði af ævi minni.
Takk fyrir að fylgjast með mér hér á síðunni og takk innilega fyrir allar kveðjurnar sem þið hafið sent mér í gestabókina mína.
Vona að þið hafið það gott um jól og áramót!
Bestu kveðjur,
Ólöf María
E.S. Mamma og pabbi biðja líka að heilsa öllum og vona að þið eigið ánægjuleg jól
Brosmild og sæl
Jæja, þetta gengur ekki mikið lengur - við erum hræðilega lélegir bloggarar! Það er svo margt búið að gerast síðan síðast að maður veit eiginlega ekki hvar skal byrja. Við ætlum samt að gera tilraun til að segja frá því helsta sem hefur verið að gerast hjá skvísunni undanfarna daga.
Við byrjuðum í ungbarnasundinu hjá Óla Gísla í Mosó þann 17. ágúst. Þetta er alveg meiriháttar aðstaða þarna í Reykjalundi og rosalega skemmtilegt prógram. Það gekk þó ekki alveg nógu vel hjá skvísunni okkar því hún hefur verið með smá barnaexem frá því hún var þriggja mánaða og það versnaði svona rosalega útaf klórnum í lauginni. Henni fannst æðislega gaman þegar tímarnir voru að hefjast en svo fór hana að klæja svo mikið og varð alveg rosalega pirruð og leið greinilega ekki vel ofan í lauginni. Þegar heim var komið sáum við líka að exemið var mikið verra eftir sundtímana þannig að við þurftum að hætta í sundinu en getum vonandi bara æft okkur sjálf um leið og exemið er farið. Það var samt rosa leiðinlegt að missa af þessu enda leikfélagarnir alveg meiriháttar skemmtilegir og Óli Gísla líka!
Þegar Ólöf María var 20 vikna gerði hún sér lítið fyrir og skellti sér af bakinu og yfir á magann og síðan þá hefur hún verið óstöðvandi. Við leggjum hana venjulega á bakið en nánast undantekningalaust er hún búin að velta sér yfir á magann áður en við vitum af. Svo fattar hún ekki að rúlla sér sjálf til baka þannig að um leið og hún er orðin þreytt í hálsinum og bakinu sendir hún okkur kvörtunartón sem þýðir að við þurfum að hjálpa henni aftur á bakið. Það hefur reyndar sést til hennar nýlega vera að velta sér í hringi og stundum endar hún einhvers staðar langt fyrir utan leikteppið sitt!
Ólöf María vaknar ennþá einu sinni á nóttunni til að drekka en það fer að líða að því að við venjum hana af þesari súper góðu þjónustu. Þessa dagana sefur hún mjög vel frá 20:30 til 4:00 - drekkur - og sefur svo til 7:00. Það kom þó tímabil um daginn þar sem hún var endalaust að vakna á nóttunni. Við skyldum ekkert í því af hverju hún var alltaf að vakna en ákváðum þá að stytta dagsvefninn hjá henni og athuga hvort hún myndi þá sofa betur á nóttuni. Viti menn - hún fór að sofa aftur eins og engill. Núna sefur hún samtals í svona 3 til 4 tíma á daginn í tveimur til þremur blundum.
Daman er búin að fara einu sinni í "sleep-over" hjá ömmu og afa í Eskiholti. Amma keypti svona rosa flott ferðarúm handa henni og ekki nóg með það.... hún fær meira að segja sitt eigið leikherbergi því Gauti frændi er fluttur niður á neðri hæðina. Nóttin gekk eins og í sögu og þar sem óróinn og fleira kunnuglegt úr rúminu hennar fékk að fljóta með til ömmu og afa tók daman eiginlega ekkert eftir því að hún væri ekki heima hjá sér. Hún er að sjálfsögðu búin að panta að gista aftur mjög fljótlega.
Daman fór í sína reglulegu skoðun, 5mánaða gömul og var það skoðunin sem að foreldrarnir kvíða einna mest því nú átti að sprauta, okkur báðum og hjúkkunni til mikillar undrunar fór daman ekki að gráta og virtist eiginlega ekkert kippa sér upp við þetta þó svo að pabbinn falli yfirleitt næstum í yfirlið þegar að nálar nálgast. Annars hafði hjúkkan ekkert nema gott um Ólöfu Maríu að segja.
Ólöf María er frekar spennt þessa dagana, hún var nefnilega að frétta að hún er að fara að flytja í stærra húsnæði þar sem hún fær pall og garð til að leika sér í. Þetta er víst svona "ljúf-sár" tilfinning þar sem að hún fær meira svæði til að njóta sín en verður að flytja úr Garðabænum, tímabundið að minnsta kosti. Það verður seint hægt að segja um hana Ólöfu Maríu að hún sé mannafæla, reyndar virðist þessu vera þvertöfugt háttað, daman virðist njóta sín einna mest í hópi og er alls ekki spör á brosið til gesta og gangandi. Undanfarin kvöld hefur fólk til dæmis verið að koma að skoða íbúðina okkar og Ólöfu Maríu finnst það alveg meiriháttar gaman og brosir til allra og heillar fólk gjörsamlega upp úr skónum. Kannski þetta sé einhver sölu-taktík í henni.....kæmi ekki á óvart ef við fengjum tilboð út á þetta fallega bros.
Bestu kveðjur til allra sem fylgjast með prinsessunni okkar!
Sigga, Massi og Ólöf María
Síðustu dagar hafa verið mjög viðburðaríkir hjá henni Ólöfu Maríu. Hún fór til dæmis í fyrsta sinn í Smáralindina um daginn og kíkti aðeins á útsölurnar! Hún sá reyndar ekkert sniðugt þar sem hún var eiginlega föst ofan í vagninum sínum allan tímann. Henni leist heldur ekkert allt of vel á hávaðann - of mikið af fólki á þessum útsölum. Svo þegar við vorum að fara heim aftur flautaði einhver bavíani á bílastæðinu og sumir hrukku í kút og verða ábyggilega nokkuð lengi að jafna sig og peppa sig upp í að fara í Smáralindina aftur!
Svo fór hún í fyrsta skipti í Kringluna í dag. Alveg á fullu í verslunarleiðangrum en í þetta skipti var ekki eins mikill hávaði þannig að hún svaf bara mest allan tímann. Sigga keypti hraðsuðuketil og fennel- og kamillute því nú á að fara að taka á því í brjóstamjólkursöfnun! Já, mjólkin hefur eitthvað verið að stríða okkur og Ólöf María er búin að kvarta sáran yfir því hvað það flæðir hægt og lítið upp í hana! Hún hefur þar af leiðandi átt svoldið erfitt með að festa svefn á daginn og verið mjög pirruð á köflum. Í dag ákváðum við því að gefa henni graut í fyrsta skipti til að sjá hvort hún gæti ekki sofnað sátt í vagninum sínum. Ólöfu Maríu leist bara mjög vel á þá hugmynd og hámaði í sig þessa heilu TESKEIÐ sem hún fékk! Já - það er byrjað smátt því hún er nú bara þriggja og hálfs mánaða. En þetta litla sem hún fékk virtist vera nóg til að hún næði að hvílast og svaf í þrjá tíma í vagninum sem hefur ekki gerst síðan mjólkin ákvað að flýja.
Mjólkurleysið hefur hins vegar ekki haft áhrif á nætursvefninn sem gengur bara svona glimrandi vel. Ólöf María er orðin svo stór og dugleg stelpa að á slaginu átta leggjum við hana í rúmið sitt í sínu eigin herbergi, trekkjum upp óróann, gefum henni dudduna sína og viti menn, hún bara sofnar sjálf og ekkert vesen (7-9-13) Svo drekkur hún tvisvar yfir nóttina og vaknar svo klukkan 7 eða 8 morguninn eftir. Sem sagt ekki hægt að kvarta yfir nætursvefninum hennar þessa dagana.
Gauti frændi passaði skvísuna eina kvöldstund um daginn á meðan mamman og pabbinn skruppu í grillveislu hjá Gunnu, mömmu hans Veigars. Það gekk eins og í sögu og hann er strax búinn að leggja inn pöntun til að fá að passa uppáhalds frænku sína aftur.
Nýjasta nýtt hjá dömunni okkar er að vilja alltaf standa í lappirnar þegar maður er að leika við hana. Já - hún heldur stundum að hún sé aðeins eldri en hún raunverulega er og eins og þið munuð sjá á myndunum, sem ég set fljótlega inn, þá getur hún staðið alveg sjálf upp við sófann ef maður heldur bara aðeins í hendina á henni! Henni finnst hún líka svaka stór þegar hún fær að standa svona og verður svo montin og ljómar öll enda enginn smá metnaður í gangi. Held hún stefni á að labba næst en við höfum nú samt verið að benda henni á að það sé kannski best að læra að skríða fyrst!
Annars er bara allt gott að frétta og við sendum öllum, sem fylgjast með Ólöfu Maríu hér á netinu, bestu kveðjur og hvetjum alla til að skrifa í gestabókina svo við sjáum hverjir eru að heimsækja okkur.
Sigga, Massi og Ólöf María
Hæ - var að setja fleiri myndir í 3ja mánaða albúmið!
Kveðja, Sigga
Jæja, nú er orðið allt of langt síðan við skrifuðum hérna síðast! Það er sko ýmislegt búið að gerast síðasta mánuðinn! Daman er orðin rúmlega þriggja mánaða og farin að taka þátt í flestum samræðum sem eiga sér stað á heimilinu. Hún er nefnilega búin að fatta að hún getur gefið frá sér alls konar hljóð. Við liggjum stundum í hláturskrampa yfir þessum hljóðum, sérstaklega þegar hún fer allt í einu í hörku samræður við bangsann sinn eða eitthvað af fígúrunum á leikteppinu. Stundum er eins og hún sé bara að hjala blíðlega til þeirra en stundum er alveg eins og hún sé að skamma bangsana og þá koma ótrúlegustu hljóð frá þessari litlu manneskju...........og við deyjum úr hlátri en reynum samt að láta hana ekki taka eftir því að við séum að hlæja að henni!
Ólöf María er komin með mjög gott grip og getur haldið á naghringjum og litlum hlutum sem við réttum henni. Þessa dagana er vinsælast að stinga þessu beint upp í sig og ef hún er ekki með dót þá bara stingur hún hendinni upp í sig í staðinn og helst báðum höndunum í einu (mjög fyndið). Henni finnst meiriháttar gaman þegar mamma syngur fyrir hana og þá fær mamma nánast undantekningarlaust sætasta bros í heimi. Yfirleitt heyrist ekkert þegar hún hlær heldur opnast bara munnurinn og andlitið ljómar allt en einstaka sinnum heyrist smá svona prakkarahlátur, helst þegar maður reynir að kítla hana. Það virðist vera farið að pirra hana svoldið að kunna ekki að skríða. Þegar við setjum hana á magann þá spennir hún hvern einasta vöðva í líkamanum og setur upp "ég skal" svipinn og svo hamast hún við að reyna að komast upp á hnén til að skríða. Við leyfum henni stundum að spirna sér í okkur og þá mjakast hún aðeins áfram og verður þá mjög ánægð - eitthvað af erfiðinu að skila smá árangri! Hún er líka orðin svaka sterk í löppunum og það liggur við að maður geti sleppt henni þegar hún reynir að standa sjálf. Svo hrósum við henni í bak og fyrir og hún verður bara eitt bros - alveg eins og hún sé að springa úr monti!
Við vorum að koma úr þriggja mánaða skoðuninni þar sem hún fékk sprautu í fyrsta skipti! Hún stóð sig ofsalega vel og grét bara í smá stund en svo var allt búið! Ég held að þetta hafi tekið meira á okkur foreldrana heldur en hana.......erfitt að þurfa að horfa upp á hana meiða sig! Hún setur líka upp svo krúttlega skeifu að maður getur bara ekki annað en vorkennt henni! Hún er orðin 62,5 cm og 5.880 grömm og er að lengjast hlutfallslega meira en hún er að þyngjast. Hún ætlar sem sagt að verða há og grönn eins og þið hafið kannski tekið eftir á myndunum. Við höfum nú samt eitthvað verið að spá í að fara að gefa henni ábót við brjóstamjólkina en hjúkkurnar sögðu að við þyrftum samt ekkert að hafa áhyggjur af þyngdinni fyrst að henni líður vel og hún er svona vær og góð. Við ætlum þar af leiðandi að bíða aðeins með að gefa henni graut enda mælt með að börn séu bara á brjóstamjólk fyrstu 6 mánuðina. Það er komin mjög góð rútína á svefninn hjá henni (7-9-13). Hún sefur yfirleitt í 10-12 tíma yfir nóttina og vaknar tvisvar til að drekka. Svo sefur hún tvisvar á dag í vagninum í svona 2-3 tíma í einu.
Eins og myndirnar af henni sína þá hefur hún greinilega erft fótboltagenin frá foreldrunum. Fáránlega fyndið hvað hún var róleg þegar við vorum að horfa á EM - hún fékk oft bara störu í langan tíma í einu og var eitthvað svo mannaleg að það liggur við að manni fyndist hún virkilega vera að skilja út á hvað þetta gengur. Svo finnst henni líka mjög gaman að horfa á PoppTíVí með pabba sínum! Verður eiginlega bara fúl ef maður skiptir um stöð og fer að horfa á fréttir eða eitthvað sem er ekki með tónlist á bak við. Það stefnir sem sagt allt í að hún verði syngjandi fótboltastelpa í framtíðinni :-)
Veigar og Íris eru á landinu og fengu loksins að hitta Ólöfu Maríu í eigin persónu. Þau komu færandi hendi með fullt af æðislegum fötum úr H&M, J-Lo galla, Súper-girl náttföt og fleira.
Jæja - skvísan vöknuð.....
Bestu kveðjur úr Arnarásnum
Haldið að skvísan hafi ekki bara velt sér af maganum og yfir á bakið í fyrsta skipti! Hún var í leikfimi með mömmu í Baðhúsinu og var að æfa sig að halda hausnum uppi þegar hún allt í einu nennti þessu ekki lengur og rúllaði sér bara yfir á bakið! Svo brosti hún bara út að eyrum og virtist vera alveg að springa úr monti. Svo prófuðum við að setja hana aftur á magann í morgun til að leyfa pabbanum að sjá líka og hún var ekki lengi að rúlla sér yfir á bakið aftur! Ótrúlegt hvað þessi litla dama getur glatt okkur foreldrana svona snemma á laugardagsmorgni.
Annars er bara allt gott að frétta, svoldið langt síðan við skrifuðum síðast enda bara búið að vera nóg að gera hjá okkur. Eins og þið sjáið á myndunum skelltum við okkur til Ísafjarðar í ferminguna hennar Hafdísar. Ólöf María var algjör engill og svaf alla leiðina vestur og var svo vakandi og sallaróleg í athöfninni. Svo varð hún reyndar svoldið þreytt og pirruð í veislunni og svaf svo bara alla leiðina suður líka. Hafdís var ekkert smá sæt og ánægð með daginn sinn enda rosalega vel heppnuð athöfn og veisla í glampandi sól og hita.
Ólöf María virðist allt í einu vera orðin svoldið mikil mömmu- og pabbastelpa. Hún hefur aldrei kvartað neitt hingað til ef einhver annar heldur á henni en í gær og í dag tók hún allt í einu upp á því að gráta bara þegar hún var í pössun hjá ömmu og afa og varð síðan bara sallaróleg þegar mamma og pabbi komu að sækja hana aftur. Amman ætlar nú samt ekkert að leyfa henni að komast upp með svona kvart og er strax búin að panta að passa hana sem fyrst aftur svo hún sjái að amma og afi bíta nú ekki!
Ólöf María fékk loksins að sjá Veigar og Írisi í gær en þau búa í Noregi og eru nú komin í msn-samband. Við getum því talað við þau með vefmyndavél og microphone og Ólöf María spjallaði aðeins við þau í gærkveldi. Strax byrjuð að læra á internetið - aðeins tveggja mánaða gömul - mætti halda að foreldrarnir vinni í tölvubúð eða eitthvað álíka! Um leið og hún verður orðin nógu gömul til að ferðast ætlum við svo að fara í heimsókn til Noregs.
Annars þakkar Ólöf María bara kærlega fyrir allar skírnargjafirnar, okkur foreldrunum fannst bara vera komin jól þegar við opnuðum alla pakkana fyrir hana! Hún fékk þvílíkt krúttlegar gjafir, bækur, hálsmen, skó, föt, rúmföt, albúm, dót og margt, margt fleira.
Bið að heilsa í bili,
Sigga
Þá er daman bara komin með nafn! Ólöf María heitir skvísan! Síðustu gestirnir voru að fara úr veislunni og var dagurinn alveg rosalega vel heppnaður. Ólöf María var algjör engill allan tímann og var alveg sátt við að flakka á milli ættingja og vina alla veisluna. Við erum auðvitað að springa úr stolti og setjum inn myndir við fyrsta tækifæri!!! Sigga fékk eiginlega að ráða fyrra nafninu enda hefur hún haldið því fram frá því hún var sirka 10 ára að ef hún myndi einhvern tímann eignast stelpu þá myndi hún heita Ólöf eins og dúkkan sín :-) Svo er Ólöf líka dregið af nafninu Ólafur þannig að hún heitir í höfuðið á afa sínum sem er mjög gaman því hún er fyrsta barnabarnið hans! Massi valdi seinna nafnið, María, því honum finnst það svo fallegt. Massi hélt á henni undir skírn en Hörður, bróðir Massa og Arthúr, bróðir Siggu voru skírnarvottar. Séra Hans Markús sá um að skíra hana en hann gifti okkur fyrir tveimur árum síðan í sömu kirkju, Garðakirkju. Veislan var haldin í Eskiholti hjá ömmunni og afanum og þökkum við þeim kærlega fyrir alla aðstoðina. Einnig fá amma og afi í Dalsbyggð þakkir fyrir aðstoðina með veigarnar!
Jæja - við lofum að setja myndir inn um leið og við komumst í tölvuna heima!
Kveðja úr Eskiholti
Massi, Sigga og Ólöf María
Jæja það er víst kominn tími til að ég "bloggi" aðeins og segi mína skoðun á þjóðfélagsmálunum. Því að ekki erum við búin að heyra nóg um þetta blessaða fjölmiðlafrumvarp og líka Björn Bjarnason sem að mér skilst að sé að fara offari þessa dagana. Þannig að hérna ætla ég að viðra skoðanir mínar á þessu öllu og ekkert að spara stóru orðin!!!!!
Ef að þú ert ennþá að lesa þá máttu alveg vita að þetta er það síðasta sem að maður er að hugsa um þessa dagana, við kappkostum við að horfa á litlu skvísuna okkar hverja vökustund. Litlu skvísuna segi ég og skrifa því að hún er ekki enn komin með nafn en það mun breytast þann 22. maí. Nafnið á henni er að vefjast fyrir okkur og er eiginlega búið að fjölga en ekki fækka í listanum um álitleg nöfn, það eru c.a. 10-15 eftir...... nei svona 1-2 góð nöfn. En eins og sumir geta vitnað til um þá skiptir nafn á einstakling mjög miklu máli og vill maður ekki skera sig of mikið úr í þeirri deild og þarf nafnið að passa manni hvort sem maður er smábarn, gella, mamma eða jafnvel amma.
Frá því að barnið kom í heiminn er maður búinn að svífa um á bleiku skýi og vill helst ekkert gera nema vera heima og horfa bara á hana þroskast, stækka, mannast, hreyfingar aukast, hjalið koma og bleijum fjölga. Svefninn er kominn í nokkuð góða rútínu og er hún yfirleitt að borða um kl.21:00 aftur klukkan 01:00 og svo 05:00 en auðvitað eru undantekningar. Að heyra hvernig maður er farinn að tala eins og ég sé þaulvanur (hún er að verða 6vikna).
Nýjustu myndirnar. Ég verð að taka fram að allar þær myndir sem að birtast af mér berum að ofan eru ekki settar inn af mér heldur Siggu og veit ég að sumir/sumar kunna henni miklar þakkir fyrir. Að velja eina góða mynd af litlu skísunni og segja að hún sé betri en önnur er ómögulegt en mín eftirlætismynd hlítur að vera af Samma, betur þekktum sem verri helmingnum í hinu magnaða tvíeyki: Begga og Sammi. Á myndinni er Sammi að halda á barni í fyrsta sinn og það er svona efni sem að lætur fullorðinn mann vökna um augun.
Ég kann öllum þeim sem að leggja leið sína á þessa síðu bestu þakkir en vil þó minna á tvennt!!!!!
1. Endilega kvittið í gestabókina REGLULEGA svo við vitum nú að einhver sé að skoða og þá líður mér vel
2. Það er ekki mikið mál að gera þessa síðu að upphafsíðu á netinu og mæli ég eindregið með því.
Virðingarfyllst: Bernharður Marzellíus Guðmundsson
Rosalega er tíminn fljótur að líða - daman strax orðin eins mánaða! Eins og þið sjáið á nýjustu myndunum er hún alltaf að stækka og verða mannalegri. Hún er farin að geta lyft höfðinu aðeins þegar hún liggur á maganum og svo byrjaði hún að hjala í morgun. Það var sko ýkt sætt - hún fór bara að spjalla á einhverju bullmáli þegar hún vaknaði og hélt svo áfram að tala við páfagaukinn á leikteppinu sínu! Svo er hún alltaf að reyna að brosa til okkar og um daginn fékk Massi þetta þvílíka bros en ég var sofandi og missti af því :(
Massi kom heim frá Glasgow með fulla ferðatösku af böngsum og fötum handa litlu prinsessunni sinni. Hún fékk líka svo mikið af fötum í vöggugjöf að fatakommóðan er að springa! Það verður sem sagt ekki fata- eða bangsaskortur fyrsta árið hjá þessari dömu. Varðandi svefninn þá lagaðist það um leið og Massi kom heim. Nú er hún farin að sofa aftur eins og engill - hún er greinilega bara svona mikil pabbastelpa! Þessa stundina eru þau sofnuð yfir Arsenal-Birmingham þar sem hún liggur á maganum á honum, þvílíkt krúttlegt, þið getið séð mynd af þeim í nýjasta albúminu!
Við mæðgurnar erum byrjaðar í leikfimi! Já, maður er víst aldrei of ungur fyrir líkamsrækt! Við erum sem sagt byrjaðar á námskeiði í Baðhúsinu sem kallast Hreyfiland. Þar fá mömmurnar að sprikla á meðan að börnin sofa eða leika sér á sérstöku leiksvæði! Svo þegar það er búið gerum við æfingar með börnunum. Við syngjum fyrir þau og liðkum þau til með ýmsum æfingum og leikjum! Þetta er bara svaka stuð og rosa sniðugt að geta tekið litlu dömuna með sér! Hún er reyndar yngsti þátttakandinn því þetta er fyrir börn á aldrinum sex vikna til eins árs. En hún fær sko enga minnimáttarkennd enda er hún svo stór og dugleg stelpa!
Bestu kveðjur úr Arnarási,
Sigga
Jæja, nú finnst dömunni ekki eins gaman að sofa og áður. Hún heldur greinilega að hún sé að missa af einhverju merkilegu því hún hefur fækkað klukkustundunum úr 18 í 10 á sólahring! Henni virðist nú samt bara líða vel þegar hún er vakandi og vill bara láta leika við sig. Við fórum í fyrsta skipti út í vagninum um daginn og svaf hún þá allan tímann. Við komum við hjá Sóldísi frænku en þar hittum við Heklu sem er orðin 5 ára og er að fara að eignast lítla systir eða lítinn bróðir næsta haust!
Massi skrapp til Glasgow með fótboltanum og er þessa stundina að versla eitthvað dúllulegt handa prinsessunni! Við söknum hans ýkt mikið en hann kemur sem betur fer heim á morgun. Þetta er eiginlega ekki eins manns job að vera með eina svona þriggja vikna sem vill ekki sofa!!! En sem betur fer á hún svo góða ömmu sem passar hana þegar mamman vill hvíla sig aðeins. Á meðan amma passaði dömuna í morgun þá fékk ég til dæmis fjögurra tíma SAMFELLDAN svefn og telst það til stórtíðinda þessa dagana!
Kveðja, Sigga