Kristján Jóhann
 

Eins mánaða í dag!

Rosalega er tíminn fljótur að líða - daman strax orðin eins mánaða! Eins og þið sjáið á nýjustu myndunum er hún alltaf að stækka og verða mannalegri. Hún er farin að geta lyft höfðinu aðeins þegar hún liggur á maganum og svo byrjaði hún að hjala í morgun. Það var sko ýkt sætt - hún fór bara að spjalla á einhverju bullmáli þegar hún vaknaði og hélt svo áfram að tala við páfagaukinn á leikteppinu sínu! Svo er hún alltaf að reyna að brosa til okkar og um daginn fékk Massi þetta þvílíka bros en ég var sofandi og missti af því :(

Massi kom heim frá Glasgow með fulla ferðatösku af böngsum og fötum handa litlu prinsessunni sinni. Hún fékk líka svo mikið af fötum í vöggugjöf að fatakommóðan er að springa! Það verður sem sagt ekki fata- eða bangsaskortur fyrsta árið hjá þessari dömu. Varðandi svefninn þá lagaðist það um leið og Massi kom heim. Nú er hún farin að sofa aftur eins og engill - hún er greinilega bara svona mikil pabbastelpa! Þessa stundina eru þau sofnuð yfir Arsenal-Birmingham þar sem hún liggur á maganum á honum, þvílíkt krúttlegt, þið getið séð mynd af þeim í nýjasta albúminu!

Við mæðgurnar erum byrjaðar í leikfimi! Já, maður er víst aldrei of ungur fyrir líkamsrækt! Við erum sem sagt byrjaðar á námskeiði í Baðhúsinu sem kallast Hreyfiland. Þar fá mömmurnar að sprikla á meðan að börnin sofa eða leika sér á sérstöku leiksvæði! Svo þegar það er búið gerum við æfingar með börnunum. Við syngjum fyrir þau og liðkum þau til með ýmsum æfingum og leikjum! Þetta er bara svaka stuð og rosa sniðugt að geta tekið litlu dömuna með sér! Hún er reyndar yngsti þátttakandinn því þetta er fyrir börn á aldrinum sex vikna til eins árs. En hún fær sko enga minnimáttarkennd enda er hún svo stór og dugleg stelpa!

Bestu kveðjur úr Arnarási,

Sigga

 

1. May 2004 - 12:19



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti