Kristján Jóhann
 

Stoltur Faðir bloggar í annað sinn!!!!

Jæja það er víst kominn tími til að  ég "bloggi" aðeins og segi mína skoðun á þjóðfélagsmálunum. Því að ekki erum við búin að heyra nóg um þetta blessaða fjölmiðlafrumvarp og líka Björn Bjarnason sem að mér skilst að sé að fara offari þessa dagana. Þannig að hérna ætla ég að viðra skoðanir mínar á þessu öllu og ekkert að spara stóru orðin!!!!!

Ef að þú ert ennþá að lesa þá máttu alveg vita að þetta er það síðasta sem að maður er að hugsa um þessa dagana, við kappkostum við að horfa á litlu skvísuna okkar hverja vökustund. Litlu skvísuna segi ég og skrifa því að hún er ekki enn komin með nafn en það mun breytast þann 22. maí. Nafnið á henni er að vefjast fyrir okkur og er eiginlega búið að fjölga en ekki fækka í listanum um álitleg nöfn, það eru c.a. 10-15 eftir...... nei svona 1-2 góð nöfn. En eins og sumir geta vitnað til um þá skiptir nafn á einstakling mjög miklu máli og vill maður ekki skera sig of mikið úr í þeirri deild og þarf nafnið að passa manni hvort sem maður er smábarn, gella, mamma eða jafnvel amma.

Frá því að barnið kom í heiminn er maður búinn að svífa um á bleiku skýi og vill helst ekkert gera nema vera heima og horfa bara á hana þroskast, stækka, mannast, hreyfingar aukast, hjalið koma og bleijum fjölga. Svefninn er kominn í nokkuð góða rútínu og er hún yfirleitt að borða um kl.21:00 aftur klukkan 01:00 og svo 05:00 en auðvitað eru undantekningar. Að heyra hvernig maður er farinn að tala eins og ég sé þaulvanur (hún er að verða 6vikna).

Nýjustu myndirnar. Ég verð að taka fram að allar þær myndir sem að birtast af mér berum að ofan eru ekki settar inn af mér heldur Siggu og veit ég að sumir/sumar kunna henni miklar þakkir fyrir. Að velja eina góða mynd af litlu skísunni og segja að hún sé betri en önnur er ómögulegt en mín eftirlætismynd hlítur að vera af Samma, betur þekktum sem verri helmingnum í hinu magnaða tvíeyki: Begga og Sammi. Á myndinni er Sammi að halda á barni í fyrsta sinn og það er svona efni sem að lætur fullorðinn mann vökna um augun.

Ég kann öllum þeim sem að leggja leið sína á þessa síðu bestu þakkir en vil þó minna á tvennt!!!!!

1. Endilega kvittið í gestabókina REGLULEGA svo við vitum nú að einhver sé að skoða og þá líður mér vel

2. Það er ekki mikið mál að gera þessa síðu að upphafsíðu á netinu og mæli ég eindregið með því.

Virðingarfyllst: Bernharður Marzellíus Guðmundsson

 

10. May 2004 - 12:48



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti