Kristján Jóhann
 

Ólöf María Bernharðsdóttir

Þá er daman bara komin með nafn! Ólöf María heitir skvísan! Síðustu gestirnir voru að fara úr veislunni og var dagurinn alveg rosalega vel heppnaður. Ólöf María var algjör engill allan tímann og var alveg sátt við að flakka á milli ættingja og vina alla veisluna. Við erum auðvitað að springa úr stolti og setjum inn myndir við fyrsta tækifæri!!! Sigga fékk eiginlega að ráða fyrra nafninu enda hefur hún haldið því fram frá því hún var sirka 10 ára að ef hún myndi einhvern tímann eignast stelpu þá myndi hún heita Ólöf eins og dúkkan sín :-) Svo er Ólöf líka dregið af nafninu Ólafur þannig að hún heitir í höfuðið á afa sínum sem er mjög gaman því hún er fyrsta barnabarnið hans! Massi valdi seinna nafnið, María, því honum finnst það svo fallegt. Massi hélt á henni undir skírn en Hörður, bróðir Massa og Arthúr, bróðir Siggu voru skírnarvottar. Séra Hans Markús sá um að skíra hana en hann gifti okkur fyrir tveimur árum síðan í sömu kirkju, Garðakirkju. Veislan var haldin í Eskiholti hjá ömmunni og afanum og þökkum við þeim kærlega fyrir alla aðstoðina. Einnig fá amma og afi í Dalsbyggð þakkir fyrir aðstoðina með veigarnar!

Jæja - við lofum að setja myndir inn um leið og við komumst í tölvuna heima!

Kveðja úr Eskiholti

Massi, Sigga og Ólöf María

22. May 2004 - 04:47



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti