Kristján Jóhann
 

Fyrsta veltan!

Haldið að skvísan hafi ekki bara velt sér af maganum og yfir á bakið í fyrsta skipti! Hún var í leikfimi með mömmu í Baðhúsinu og var að æfa sig að halda hausnum uppi þegar hún allt í einu nennti þessu ekki lengur og rúllaði sér bara yfir á bakið! Svo brosti hún bara út að eyrum og virtist vera alveg að springa úr monti. Svo prófuðum við að setja hana aftur á magann í morgun til að leyfa pabbanum að sjá líka og hún var ekki lengi að rúlla sér yfir á bakið aftur! Ótrúlegt hvað þessi litla dama getur glatt okkur foreldrana svona snemma á laugardagsmorgni.

Annars er bara allt gott að frétta, svoldið langt síðan við skrifuðum síðast enda bara búið að vera nóg að gera hjá okkur. Eins og þið sjáið á myndunum skelltum við okkur til Ísafjarðar í ferminguna hennar Hafdísar. Ólöf María var algjör engill og svaf alla leiðina vestur og var svo vakandi og sallaróleg í athöfninni. Svo varð hún reyndar svoldið þreytt og pirruð í veislunni og svaf svo bara alla leiðina suður líka. Hafdís var ekkert smá sæt og ánægð með daginn sinn enda rosalega vel heppnuð athöfn og veisla í glampandi sól og hita. 

Ólöf María virðist allt í einu vera orðin svoldið mikil mömmu- og pabbastelpa. Hún hefur aldrei kvartað neitt hingað til ef einhver annar heldur á henni en í gær og í dag tók hún allt í einu upp á því að gráta bara þegar hún var í pössun hjá ömmu og afa og varð síðan bara sallaróleg þegar mamma og pabbi komu að sækja hana aftur. Amman ætlar nú samt ekkert að leyfa henni að komast upp með svona kvart og er strax búin að panta að passa hana sem fyrst aftur svo hún sjái að amma og afi bíta nú ekki!

Ólöf María fékk loksins að sjá Veigar og Írisi í gær en þau búa í Noregi og eru nú komin í msn-samband. Við getum því talað við þau með vefmyndavél og microphone og Ólöf María spjallaði aðeins við þau í gærkveldi. Strax byrjuð að læra á internetið - aðeins tveggja mánaða gömul - mætti halda að foreldrarnir vinni í tölvubúð eða eitthvað álíka! Um leið og hún verður orðin nógu gömul til að ferðast ætlum við svo að fara í heimsókn til Noregs.

Annars þakkar Ólöf María bara kærlega fyrir allar skírnargjafirnar, okkur foreldrunum fannst bara vera komin jól þegar við opnuðum alla pakkana fyrir hana! Hún fékk þvílíkt krúttlegar gjafir, bækur, hálsmen, skó, föt, rúmföt, albúm, dót og margt, margt fleira.

Bið að heilsa í bili,

Sigga

 

 

5. June 2004 - 11:41



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti