
Jæja, nú er orðið allt of langt síðan við skrifuðum hérna síðast! Það er sko ýmislegt búið að gerast síðasta mánuðinn! Daman er orðin rúmlega þriggja mánaða og farin að taka þátt í flestum samræðum sem eiga sér stað á heimilinu. Hún er nefnilega búin að fatta að hún getur gefið frá sér alls konar hljóð. Við liggjum stundum í hláturskrampa yfir þessum hljóðum, sérstaklega þegar hún fer allt í einu í hörku samræður við bangsann sinn eða eitthvað af fígúrunum á leikteppinu. Stundum er eins og hún sé bara að hjala blíðlega til þeirra en stundum er alveg eins og hún sé að skamma bangsana og þá koma ótrúlegustu hljóð frá þessari litlu manneskju...........og við deyjum úr hlátri en reynum samt að láta hana ekki taka eftir því að við séum að hlæja að henni!
Ólöf María er komin með mjög gott grip og getur haldið á naghringjum og litlum hlutum sem við réttum henni. Þessa dagana er vinsælast að stinga þessu beint upp í sig og ef hún er ekki með dót þá bara stingur hún hendinni upp í sig í staðinn og helst báðum höndunum í einu (mjög fyndið). Henni finnst meiriháttar gaman þegar mamma syngur fyrir hana og þá fær mamma nánast undantekningarlaust sætasta bros í heimi. Yfirleitt heyrist ekkert þegar hún hlær heldur opnast bara munnurinn og andlitið ljómar allt en einstaka sinnum heyrist smá svona prakkarahlátur, helst þegar maður reynir að kítla hana. Það virðist vera farið að pirra hana svoldið að kunna ekki að skríða. Þegar við setjum hana á magann þá spennir hún hvern einasta vöðva í líkamanum og setur upp "ég skal" svipinn og svo hamast hún við að reyna að komast upp á hnén til að skríða. Við leyfum henni stundum að spirna sér í okkur og þá mjakast hún aðeins áfram og verður þá mjög ánægð - eitthvað af erfiðinu að skila smá árangri! Hún er líka orðin svaka sterk í löppunum og það liggur við að maður geti sleppt henni þegar hún reynir að standa sjálf. Svo hrósum við henni í bak og fyrir og hún verður bara eitt bros - alveg eins og hún sé að springa úr monti!
Við vorum að koma úr þriggja mánaða skoðuninni þar sem hún fékk sprautu í fyrsta skipti! Hún stóð sig ofsalega vel og grét bara í smá stund en svo var allt búið! Ég held að þetta hafi tekið meira á okkur foreldrana heldur en hana.......erfitt að þurfa að horfa upp á hana meiða sig! Hún setur líka upp svo krúttlega skeifu að maður getur bara ekki annað en vorkennt henni! Hún er orðin 62,5 cm og 5.880 grömm og er að lengjast hlutfallslega meira en hún er að þyngjast. Hún ætlar sem sagt að verða há og grönn eins og þið hafið kannski tekið eftir á myndunum. Við höfum nú samt eitthvað verið að spá í að fara að gefa henni ábót við brjóstamjólkina en hjúkkurnar sögðu að við þyrftum samt ekkert að hafa áhyggjur af þyngdinni fyrst að henni líður vel og hún er svona vær og góð. Við ætlum þar af leiðandi að bíða aðeins með að gefa henni graut enda mælt með að börn séu bara á brjóstamjólk fyrstu 6 mánuðina. Það er komin mjög góð rútína á svefninn hjá henni (7-9-13). Hún sefur yfirleitt í 10-12 tíma yfir nóttina og vaknar tvisvar til að drekka. Svo sefur hún tvisvar á dag í vagninum í svona 2-3 tíma í einu.
Eins og myndirnar af henni sína þá hefur hún greinilega erft fótboltagenin frá foreldrunum. Fáránlega fyndið hvað hún var róleg þegar við vorum að horfa á EM - hún fékk oft bara störu í langan tíma í einu og var eitthvað svo mannaleg að það liggur við að manni fyndist hún virkilega vera að skilja út á hvað þetta gengur. Svo finnst henni líka mjög gaman að horfa á PoppTíVí með pabba sínum! Verður eiginlega bara fúl ef maður skiptir um stöð og fer að horfa á fréttir eða eitthvað sem er ekki með tónlist á bak við. Það stefnir sem sagt allt í að hún verði syngjandi fótboltastelpa í framtíðinni :-)
Veigar og Íris eru á landinu og fengu loksins að hitta Ólöfu Maríu í eigin persónu. Þau komu færandi hendi með fullt af æðislegum fötum úr H&M, J-Lo galla, Súper-girl náttföt og fleira.
Jæja - skvísan vöknuð.....
Bestu kveðjur úr Arnarásnum
Skrifa athugasemd