Kristján Jóhann
 

Að hátta klukkan átta

Síðustu dagar hafa verið mjög viðburðaríkir hjá henni Ólöfu Maríu. Hún fór til dæmis í fyrsta sinn í Smáralindina um daginn og kíkti aðeins á útsölurnar! Hún sá reyndar ekkert sniðugt þar sem hún var eiginlega föst ofan í vagninum sínum allan tímann. Henni leist heldur ekkert allt of vel á hávaðann - of mikið af fólki á þessum útsölum. Svo þegar við vorum að fara heim aftur flautaði einhver bavíani á bílastæðinu og sumir hrukku í kút og verða ábyggilega nokkuð lengi að jafna sig og peppa sig upp í að fara í Smáralindina aftur!

Svo fór hún í fyrsta skipti í Kringluna í dag. Alveg á fullu í verslunarleiðangrum en í þetta skipti var ekki eins mikill hávaði þannig að hún svaf bara mest allan tímann. Sigga keypti hraðsuðuketil og fennel- og kamillute því nú á að fara að taka á því í brjóstamjólkursöfnun! Já, mjólkin hefur eitthvað verið að stríða okkur og Ólöf María er búin að kvarta sáran yfir því hvað það flæðir hægt og lítið upp í hana! Hún hefur þar af leiðandi átt svoldið erfitt með að festa svefn á daginn og verið mjög pirruð á köflum. Í dag ákváðum við því að gefa henni graut í fyrsta skipti til að sjá hvort hún gæti ekki sofnað sátt í vagninum sínum. Ólöfu Maríu leist bara mjög vel á þá hugmynd og hámaði í sig þessa heilu TESKEIÐ sem hún fékk! Já - það er byrjað smátt því hún er nú bara þriggja og hálfs mánaða. En þetta litla sem hún fékk virtist vera nóg til að hún næði að hvílast og svaf í þrjá tíma í vagninum sem hefur ekki gerst síðan mjólkin ákvað að flýja.

Mjólkurleysið hefur hins vegar ekki haft áhrif á nætursvefninn sem gengur bara svona glimrandi vel. Ólöf María er orðin svo stór og dugleg stelpa að á slaginu átta leggjum við hana í rúmið sitt í sínu eigin herbergi, trekkjum upp óróann, gefum henni dudduna sína og viti menn, hún bara sofnar sjálf og ekkert vesen (7-9-13) Svo drekkur hún tvisvar yfir nóttina og vaknar svo klukkan 7 eða 8 morguninn eftir. Sem sagt ekki hægt að kvarta yfir nætursvefninum hennar þessa dagana.

Gauti frændi passaði skvísuna eina kvöldstund um daginn á meðan mamman og pabbinn skruppu í grillveislu hjá Gunnu, mömmu hans Veigars. Það gekk eins og í sögu og hann er strax búinn að leggja inn pöntun til að fá að passa uppáhalds frænku sína aftur.

Nýjasta nýtt hjá dömunni okkar er að vilja alltaf standa í lappirnar þegar maður er að leika við hana. Já - hún heldur stundum að hún sé aðeins eldri en hún raunverulega er og eins og þið munuð sjá á myndunum, sem ég set fljótlega inn, þá getur hún staðið alveg sjálf upp við sófann ef maður heldur bara aðeins í hendina á henni! Henni finnst hún líka svaka stór þegar hún fær að standa svona og verður svo montin og ljómar öll enda enginn smá metnaður í gangi. Held hún stefni á að labba næst en við höfum nú samt verið að benda henni á að það sé kannski best að læra að skríða fyrst!

Annars er bara allt gott að frétta og við sendum öllum, sem fylgjast með Ólöfu Maríu hér á netinu, bestu kveðjur og hvetjum alla til að skrifa í gestabókina svo við sjáum hverjir eru að heimsækja okkur.

Sigga, Massi og Ólöf María

15. July 2004 - 11:00



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti