Kristján Jóhann
 

Brosmild og sæl

Jæja, þetta gengur ekki mikið lengur - við erum hræðilega lélegir bloggarar! Það er svo margt búið að gerast síðan síðast að maður veit eiginlega ekki hvar skal byrja. Við ætlum samt að gera tilraun til að segja frá því helsta sem hefur verið að gerast hjá skvísunni undanfarna daga.

Við byrjuðum í ungbarnasundinu hjá Óla Gísla í Mosó þann 17. ágúst. Þetta er alveg meiriháttar aðstaða þarna í Reykjalundi og rosalega skemmtilegt prógram. Það gekk þó ekki alveg nógu vel hjá skvísunni okkar því hún hefur verið með smá barnaexem frá því hún var þriggja mánaða og það versnaði svona rosalega útaf klórnum í lauginni. Henni fannst æðislega gaman þegar tímarnir voru að hefjast en svo fór hana að klæja svo mikið og varð alveg rosalega pirruð og leið greinilega ekki vel ofan í lauginni. Þegar heim var komið sáum við líka að exemið var mikið verra eftir sundtímana þannig að við þurftum að hætta í sundinu en getum vonandi bara æft okkur sjálf um leið og exemið er farið. Það var samt rosa leiðinlegt að missa af þessu enda leikfélagarnir alveg meiriháttar skemmtilegir og Óli Gísla líka!

Þegar Ólöf María var 20 vikna gerði hún sér lítið fyrir og skellti sér af bakinu og yfir á magann og síðan þá hefur hún verið óstöðvandi. Við leggjum hana venjulega á bakið en nánast undantekningalaust er hún búin að velta sér yfir á magann áður en við vitum af. Svo fattar hún ekki að rúlla sér sjálf til baka þannig að um leið og hún er orðin þreytt í hálsinum og bakinu sendir hún okkur kvörtunartón sem þýðir að við þurfum að hjálpa henni aftur á bakið. Það hefur reyndar sést til hennar nýlega vera að velta sér í hringi og stundum endar hún einhvers staðar langt fyrir utan leikteppið sitt!

Ólöf María vaknar ennþá einu sinni á nóttunni til að drekka en það fer að líða að því að við venjum hana af þesari súper góðu þjónustu. Þessa dagana sefur hún mjög vel frá 20:30 til 4:00 - drekkur - og sefur svo til 7:00. Það kom þó tímabil um daginn þar sem hún var endalaust að vakna á nóttunni. Við skyldum ekkert í því af hverju hún var alltaf að vakna en ákváðum þá að stytta dagsvefninn hjá henni og athuga hvort hún myndi þá sofa betur á nóttuni. Viti menn - hún fór að sofa aftur eins og engill. Núna sefur hún samtals í svona 3 til 4 tíma á daginn í tveimur til þremur blundum.

Daman er búin að fara einu sinni í "sleep-over" hjá ömmu og afa í Eskiholti. Amma keypti svona rosa flott ferðarúm handa henni og ekki nóg með það.... hún fær meira að segja sitt eigið leikherbergi því Gauti frændi er fluttur niður á neðri hæðina. Nóttin gekk eins og í sögu og þar sem óróinn og fleira kunnuglegt úr rúminu hennar fékk að fljóta með til ömmu og afa tók daman eiginlega ekkert eftir því að hún væri ekki heima hjá sér. Hún er að sjálfsögðu búin að panta að gista aftur mjög fljótlega.

Daman fór í sína reglulegu skoðun, 5mánaða gömul og var það skoðunin sem að foreldrarnir kvíða einna mest því nú átti að sprauta, okkur báðum og hjúkkunni til mikillar undrunar fór daman ekki að gráta og virtist eiginlega ekkert kippa sér upp við þetta þó svo að pabbinn falli yfirleitt næstum í yfirlið þegar að nálar nálgast. Annars hafði hjúkkan ekkert nema gott um Ólöfu Maríu að segja.

Ólöf María er frekar spennt þessa dagana, hún var nefnilega að frétta að hún er að fara að flytja í stærra húsnæði þar sem hún fær pall og garð til að leika sér í. Þetta er víst svona "ljúf-sár" tilfinning þar sem að hún fær meira svæði til að njóta sín en verður að flytja úr Garðabænum, tímabundið að minnsta kosti. Það verður seint hægt að segja um hana Ólöfu Maríu að hún sé mannafæla, reyndar virðist þessu vera þvertöfugt háttað, daman virðist njóta sín einna mest í hópi og er alls ekki spör á brosið til gesta og gangandi. Undanfarin kvöld hefur fólk til dæmis verið að koma að skoða íbúðina okkar og Ólöfu Maríu finnst það alveg meiriháttar gaman og brosir til allra og heillar fólk gjörsamlega upp úr skónum. Kannski þetta sé einhver sölu-taktík í henni.....kæmi ekki á óvart ef við fengjum tilboð út á þetta fallega bros.  

Bestu kveðjur til allra sem fylgjast með prinsessunni okkar!

Sigga, Massi og Ólöf María

16. September 2004 - 08:38



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti