

hæ sæti strákur.
Ég var að finna síðuna þína:) Mikið ertu nú flotttur strákur ! Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
biðjum að heilsa mömmu þinni.
knoss Elva & Aron
Jiii hvað þú ert flottur :) situr ekkert smá fínt og ert bara alveg endalaust sætur með þessar fínu tönnslur! Skilaðu knúsi á mömmu þína og hafið það gott um jólin.
Kveðja frá Ástralíu ;)
Hey má ég fá þig lánaðan í einn dag um jólin? PLÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍS
Hei!!! Flott jólalag hjá þér á forsíðunni :)
Íris og co
Kvitt kvitt,
Ótrúlega ertu orðinn stór strákur, tönnslurnar hrannast upp og farinn að skríða og allt.
Segðu múttu að setja inn desembermyndir!
Kv Oddný frænka
Sæll frændi!
Voða ertu að flýta þér, farinn að skríða hermannaskriði og nánast farinn að standa upp og kominn með 3 tennur, hvar endar þetta eiginlega? Þú ert ekkert smá mikið krútt:) biðjum að heilsa....
Heyrðu mig litli kall...það er sko kominn desember, það er ekki nóvember lengur og engin mynd hefur sést af þér. ég vil myndir, það er próftíð, ég hef ekkert að gera nema stelast til að vera á netinu og ég vil fá nýjar myndir af þér! Segðu mömmu þinni að hlaða myndavélina:)
Kvitt kvitt
kvitt kvitt sæti ;o)
Komdu bara í heimsókn, hér er nóg af jólaljósunum og nóg til af jólatónlistinni :o)
En ertu ekki að koma í pössun eftir nokkra daga???
Hlökkum til þess :o)
Kveðja Einbúarnir 4 :oþ
Gaman að sjá hvað guttinn stækkar og þroskast. Flottur strákur sem þú átt Drífa mín :o)
(Þú manst svo það sem ég sagði um næsta vetur!)
Takk fyrir pössunina. Nú getur þú haft mömmu þína aleinn ;o) Við hittumst svo á morgun í afmælinu hennar Rebekku Rósar. Ég skal sýna þér dótið mitt....
Jesús hvað þú ert fallegur barn!!! Kannski ekkert skrítið, fæddur inn í svo fallega fjölskyldu:) Gaman að geta fylgst með þér hér, segðu mömmu að halda áfram að vera dugleg að taka myndir og setja inn. Pant ég passa þig um jólin!! Sjáumst.
Sæll sæti! Er hér í vinnunni að láta mér leiðast en datt svo í hug að líta á þessat stórgóðu myndir af þér. Þú ert alltaf jafn sætur litla mús. Ég held að foreldrar þínir fari að flassbrenna þig í framan af allri þessari myndatöku. En nei kannski ekki. Hafðu það gott og skilaðu kveðju til Mömmu og Pabba. Kveðja Helga.
Halló sæti,
Þú ert bara alltaf í sundi, og farin að fá smá fasta fæðu og svona, ég er alltaf að kíkja á þig, það er svo gaman að sjá hvað þú ert að bralla. bið að heilsa þeim gömlu hehe.
Kveðja Oddný
Hæhæ við kikjum nú alltaf annars lagið á þig sæti snáði,rosalega er mamma þín dugleg að setja inn myndir af þér,og vá hvað þú ert orðin duglegur strákur bara farin að sitja og allt. En jæja mamma biður rosalega vel að heilsa mömmu þinni kv Petra og Heiður Ösp
þú ert svo mikið krútt:)
sæll flotti frændi!
Við vorum aðeins í heimsókn hjá þér, við komum oft hingað til að skoða hvað þú ert að brasa! Þú ert alltaf jafnflottur og farinn að klappa, kannski mamma fari að kenna mér það? Fyndið með þessar mælingar þínar, er notað málband eða? Ég er að fara í 6 mánaða sprautuna mína 6.nóv og þá býst mamma við að ég verði orðinn 9 kg, ójá er enn á sterum, híhí. Við biðjum að heilsa í bæinn,
kv. Sævar Örn stóri frændi og mamman...
Hæ frændi,
Ég kíki alltaf á þig á hverjum degi og athuga hvort það sé komið eitthvað nýtt. Mér finnst bara fyndið hvað þú stækkar fljótt, er bara ekki að ná því. Hvenær ætlarðu svo að koma í bæinn svo maður geti séð þig?
Kv Oddný frænka
hæ sæti :o)
Ég er hér á hverjum degi að dást að þér ;o)
Sæll Magnús Ari!
Vorum aðeins að kíkja á myndirnar þínar -
aldeilis stór og flottur strákur hér á ferð!
Bið kærlega að heilsa mömmunni þinni ;o)
Kv. Brynja (ybs) og Arnar Elí
Hæhæ, rosalega ertu orðinn stór og duglegur strákur! Farinn að sitja svona líka rosa flott :) þetta er nú almennilegt. Viktor spyr hvernig í ósköpunum þér geti fundist gaman að láta bursta tennurnar, honum finnst það nefninlega u.þ.b. með því leiðinlegra sem til er! Hehe. Kveðja frá Brisbane, Ástralíu :D
Vorum bara aðeins að skoða þig, kvitt, kvitt....
Kvitt, flottur strákur bara kominn með 2 tönnslur og farinn að sitja, það er aldeilis sem á að flýta sér að verða stór:)
hæhæ..litli frændi! mikið þykir mér þú hafa stækkað síðan ég sá þig síðast! þarf að fara hitta þig þar sem þú mátt ekki gleyma uppáhalds frænku þinni:)
kær kveðja að norðan
Ragnhildur Ýr
Halló halló Magnús Ari. Hvað segir þú gott hvar eru mamma þín og pabbi þinn. Kveðja Rebekka Rós.
Hæ sæti sæti,
Já maður verður nú að fara að taka sig á í tölvumálunum og kíkja oftar á þig litili prins. .... þetta gengur ekki!! Þú bara kominn með tennur og ég vissi ekki af því ;( já ég skammast mín :/
Vonandi fáum við nú að hitta þig fljótlega og bæta upp fyrir skömmina okkar :)
Kveðja
Lilja, Danival Ísak og Dagur Aron
p.s. Dagur Aron var að fikta í tölvunni þannig að ég gat ekki klárað að skrifa þess vegna kom þetta 2x.
kvitt kvitt ;o)
Hæ sæti. Það er ekkert smá gaman að geta fylgst með þér hérna fyrst við sjáumst svona sjaldan. Þú ert rosalega flottur í sundinu. Biðjum að heilsa mömmu og pabba.
Kveðja Andri Már og mamma.
Þú ert nú meira krúttið, kominn með tvær tönnsur, til hamingju með þær!!! Og rosalega ertu flottur í sundinu, það er alltaf svo gaman að sjá nýjar myndir af þér.
Kv Oddný frænks