

Hæ sæti! Takk fyrir síðast :) Þú ert svakalega flottur á nýju myndunum. Svakalega ertu nú stór og mannalegur enda styttist óðum í stórafmæli hjá þér ;) Sjáumst vonandi fljótlega!
Kærar kveðjur,
Helga og Andri Liljar
Gleðilegt sumar Þórir Freyr!
Var að skoða myndir af prinsinum og langaði að kvitta fyrir innlitið ;-) Mikið er þetta flott sundlaug sem þið eruð í ungbarnasundinu, er þetta Árbæjarlaugin?! Held við mæðgur verðum að taka sundlaugarúnt til Reykjavíkur!
Bestu kveðjur,
Sandra sængurlegu-selskapsdama og Ólafía Sara
Hæ hó, gaman að kíkja á myndirnar og myndböndin ykkar.
Vildum bara kasta kveðju á fólkið og vonum að allt gangi vel. Bestu kveðjur ;)
Vá hvað þú ert orðin stór ungi maður :-)
Ég var að horfa á myndbandið mér þér ganga.... og brosti bara út af eyrum, þú ert svo yndislegur.
Vonandi ertu stilltur hjá mömmu þegar hún er að vinna í lokaverkefninu sínu... þetta fer alveg að verða búið :-)
Bestu kveðjur úr snjónum
Anna Huld
Sæll og blessaður, Þórir Freyr, loksins er amma búin að rifja upp hvernig á að kvitta í gestabókina, reyndar með hjálp Björns afa, svona er nú minnið þegar maður er orðin áttræður og of langt verður á milli bréfa. Gleðilegt sumar, öll sömul og við afi þökkum samverustundir í vetur, það var svo gaman að fá að sjá ykkur öll. Og nú ertu líklega farinn að spranga um allt, miðað við fyrri fréttir, duglegur strákur ! Myndin á sundlaugarbarminum er sérstaklega skemmtileg. - Allt gott að frétta, vorum að syngja við opnun Gljúfrastofu í dag, fjárhúsið og hlaða Sigurgeirs orðið afskaplega skemmtilega innréttað og fjöldi af yndislegum landslagsmyndum úr nágrenni Jökulsár prýða veggi út um allt, ásamt ýmsu fleira skemmtilegu. - Sumarkveðjur.Hittumst heil. Amma og afi á Valþjófsstöðum.
Gleðilegt sumar, Þórir Freyr og fjölskylda. Sjáumst aftur, fljótlega.
Hæ sæti frændi....
Þú ert nú meiri grallaraspóinn, minnir svoldið á hann frænda þinn hann Kristófer Áka, þið væruð nú góðir saman.
Skilaðu baráttukveðju til mömmu þinnar á lokasprettinum í skólanum.
Kossar og knús
Hrefna Rún og co
bara láta vita að við kíkjum reglulega að sjá þig stækka :) væri gaman að hitta þig nú fljótlega og sjá þig labba svona í alverunni .. kv. Nikolas
Sæll Þórir Freyr!
Þú hefur aldeilis tekið framförum í að ganga síðan ég sá þig síðast 22. mars! Gangi þér vel áfram. Afi biður að heilsa.
Kærar kveðjur,
Elisabeth bestemor
Vá, hvað þú ert duglegur að æfa þig að labba og ekki ertu nú síður duglegur í sundinu.
Alltaf gaman að koma við á síðunni þinni að sjá þessar flottu myndir.
Kv, Erna og stelpurnar í Grundarfirði
Til hamingju með stóra daginn í fyrradag! Þú ert algjör hetja.
Knús og kossar
Vá fyrstu skrefin.... stór dagur hjá þér í gær, innilega til hamingju með þetta :ö) þú ert svo duglegur.
Knús og koss frá Akureyri
Til hamingju með þetta. Þórir Freyr
Hæ, Þórir Freyr til hamingju með fyrstu skrefin þín í dag. Það var gaman að vera vitni af þessum STÓRVIÐBURÐI:)
Sjáumst þín besta "frænka" og barnapía
Katla
Elsku Þórir Freyr!
Alltaf gaman að skoða myndirnar af þér. Sjáumst fljótlega. Bið að heilsa.
Kærar kveðjur,
bestemor Elisabeth
hæ en hvað þú ert flottur og duglegur strákur nú getum við Dagbjartur ekki beðið eftir að hann verði nógu stór til að geta leikið við þig
við sjáumst vonandi fljótlega
Þú ert sko ekki minni fyrirsæta en hún frænka þín;) knúss á þig sæti
hæ hæ sæti vinur minn
hlakka til að sjá þig fljótlega og fá að komast í þessa morgunkorna-skúffu með þér :)
Ákváðum að kvitta fyrir innlitið. Flottar nýjar myndir
Kveðjur Guðný Gréta, Bjartmar Þorri, Kristín Telma, Jóhann Atli og Bergsveinn Ás
Vá hvað þú ert orðin stór og alltaf jafn rosalega sætur. Heppinn að eiga frænda eins og Jón Magnús til að gefa þér svona góðan ís :-)
Hlakka til að sjá þig í næstu viku ;-)
Hæ hó fjölskylda. Langaði að kvitta í gestabókina, maður er nú latur við það þó maður kíki nú alltaf á myndirnar af fyrirsætunni.
Aldeilis upprennandi sundkappi þarna, já eða pólómeistari. ;)
Hafið það gott, Stína og Björgvin
Mikið ertu nú orðinn stór og duglegur.. ekkert smá flottur í sundinu! :)
Án efa sætasta baunin í bænum;)
Hei hei!
Hvordan står det til?
I disse sene kveldstimer ligger du kanskje allerede og sover. Det skal også din gamle bestemor også snart gjøre. Du kan hilse og si til foreldrene dine at i dag 26. feb. er Nonni (Jón Halldórsson) 80 år!
Hilsen Elisabeth bestemor
En ting til: bestefar Björn driver stadig og fremkaller bilder av deg som han setter på rad og rekke oppe på kjøleskapet og skrivbordet, for å kikke på deg.
Halló.
Mjög skemmtilegar myndir af þér í sundinu. Ég held þú stækkir og þroskist of hratt, maður missir einhvern veginn af þér. Þú verður líklega farinn að labba um allt þegar ég sé þig næst.
Kveðja Guðný Gréta.
Rosalega gaman að sjá hvað þú ert orðinn duglegur Þórir Freyr, bara farinn að ganga með og allt! :)
Kveðja til gamla settsins
Knúsikveðjur
Vala
p.s. mamma þín var hörku dugleg í herþjálfun í morgun! hehehehe....
Sæll frændi og vá hvað þú stækkar hratt. Okkur langar bara orðið að fá að sjá þig aftur, við sáumst jú síðast held ég í september í göngunum:þ En nóg um það eruð þið ekki í hólunum enþá ef svo er búum við hérna fyrir neðan þig í Leirubakkanum. Við vorum að dást að því hvað þú ert duglegur Ísabella orðin 1 árs og gengur bara meðfram öllu, en hún er eins og þú ekki alveg farin að þora að sleppa enþá, en hún verður líklegast samti tætarinn og þú. Hvaðan ætli að þið erfið það gen.
En við byrjum bara að heilsa í bili og vonandi sjáumst við fljótlega.
Bestu kveðjur úr Leirubakkanum,
Kristín Dögg, Ísabella Auður Nótt, Matthías og bumbubúinn.
Sætastur og flottastur og bestur, kossar og knús
Elsku Þórir Freyr.
Við vorum að skoða nýjustu myndirnar af þér og myndböndin. Það var gaman. Hlökkum til að sjá þig næst!
Bestu kveðjur,
afi og amma