

Kíkti hér inn til að sjá myndir af prinsinum og fylgjast með framförunum. Gangi ykkur allt í haginn
Takk fyrir síðast. Þú varst rosalega duglegur að drekka í gærkvöldi enda engin venjuleg barnapía að störfum:) Haltu áfram að vera svona duglegur drengur. Sjáumst sem fyrst aftur. Kveðja Katla
Vá hvað maður er orðinn mannalegur!!! Það er gaman að sjá að þú ert að braggast litli gutti. Mamma þín verður að hætta að hafa áhyggjur af því að þú munir ekki passa í heimferðargallan því ef svo verður er það bara vegna þess að þú verður orðinn svo stór og sterkur!!! Er það nú ekki bara gott mál ? ;) Bið að heilsa gömlu!!!
Halló kæra fjölskylda :)
Sá áminninguna á vefdagbókinni svo ég dreif mig í að kvitta.
Maður gleymir því svo gjarnan þó maður kíki á ykkur nokkrar ferðir á dag til að skoða.
Líði ykkur sem best og hlakka til að knúsast í þér litli kútur:)
Hæ þetta er að verða svakalegur Gaur og er það gott að sjá hann braggast með hverjum degi.
Kveðja úr fjárhúsunum þar er líka bras með að gefa brjóst.
Góða nótt Besta amma í heimi.
hæ þið öll!!
Rosa gaman að sjá nýjar myndir!!:) Vonandi að þið verðið áfram svona dugleg að setja inn nýtt dótarí!!! hehe já koma svo Hrafnhildur!!!:)
Ég verð nú bara að segja að þið eruð alveg afskaplega falleg fjölskylda svona öll 3 saman!!! Ég er búin að skoða myndirnar aftur og aftur, fæ bara ekki leið á því:)
Katla þú tekur þig líka mjög vel út, efni í fyrirmyndarbarnapíu!!!:)
bestu kveðjur
Soffía
p.s. ég var beðin að koma ábendingu til ykkar.... Sveinn Elmar Kristjánsson er víst mjög hot nafn um þessar mundir!!!
Elsku Kristján og Hrafnhildur! Til hamingju með þennan fallega strák. Hann er alveg eins og þið bæði :) Erum viss um að hann kemur sterkur út úr þessum hremmingum!! Knúsiði litla kútinn frá okkur. Baráttukveðjur Haddi frændi og fjölskylda.
Mwwwaaa sætastur. Mikið var gaman að hitta þig um daginn;) var búin að bíða svo lengi. Svo er maður nú svo frægur að hafa fylgst með fluttningnum frá kassa yfir í vöggu og sjá prinsinn klæddan í fyrsta skipti. Ein montinn. Þú ert duglegastur;)
Elsku Hrafnhildur og Kristján... innilega til hamingju með litla guttan...hann er algjör prins, hann er lika svo svakalega fallegur! Gangi ykkur svo alveg rosalega vel! :)
velkominn í heiminn litli sæti.. það hefur verið ansi gott að vera í bumbunni hennar mömmu, en þú hefur ákveðið að koma loksins út.
skilaðu rosalega góðri kveðju til mömmu og pabba..
kveðja Pálína
Heil og sæl kæra fjölskylda.Til hamingju með tilveruna litli maður og til hamingju með drenginn foreldrar.
Þetta er aldeilis myndarlegur drengur sem þið fenguð.Gangi ykkur öllum vel, Unnur frænka.
obboslega er gaman að sjá þig svona slöngu-lausan :) og í fötum...ekkert smá mannalegur og sætur
Það er allt annað að sjá þig núna þegar þú ert laus við allt slöngudótið! Þú ert soddan myndar drengur en það sást nú áður þrátt fyrir aukahlutina!!! Jæja, sætastur, ég bið bara að heilsa mömmu þinni og pabba! Baráttukveðjur!!!
Halló, halló, elskurnar mínar,
Og innilega til hamingju með litla guttann.
Ég læt heyra frá mér þegar ég verð á suðurleið.
Vonandi á ykkur öllum eftir að heilsast vel.
Með kveðju,
Elsa Ágústa
halló!!! hehehe Stjánasvipurinn á þér krakki!!!! Gaman að sjá nýjar myndir!!:)
Bestu kveðjur
Soffía og Svenni
p.s. það er farið að glitta í grænt gras undir snjónum!!:)
Innilega til hamingju með krúttibolluna ykkar, hafið það sem allra best. Kveðja af skaganum, Fanney Svala
hæ hæ litli gutt :) æðislegt að fá að sjá myndirnar af þér....þú ert svo líkur pabba þínum....og kannski með munnsvipinn hennar mömmu þinnar humm eða ekki :) kemur í ljós.....hlakka til að sjá þig aftur fljótlega og þá færðu kannski að hitta sætu kærustuna þína líka :) þær bíða sko í röðum eftir svona myndalegum prins eins og þér.
koss og knús úr Kópavoginum
Hæ ég var að komast inn á þetta sem alþjóð fær að skoða en þetta er í lagi eins og er.
Til hamingju með Gaurinn og vonandi heldur hann áfram að vera eins og pabbi sinn,
Kveðja besta amma í heimi.
Hæ sæti og takk fyrir síðast. Það er allt annað að sjá þig ekki með allar þessar slöngur og nálar í þér. Hlakka til að sjá þig eftir helgi....þá fæ ég kannski að halda á þér??!! Hafið það sem allra best litla fjölskylda:) Knús og kossar Katla. Jón frændi biður að heilsa.
Til hamingju með litlu dúlluna og gangi ykkur vel. Vona að hann hressist sem fyrst. Kv. Rannveig bekkjarsystir
Innilega til hamingju með stráksa! Vona að hann braggist vel. Hlakka til að kíkja á hann í sumar! :) Kram från Sverige, Kristveig frænka
Elsku litla fjölskylda til hamingju með litla gullmolann, hann er gullfallegur. Megi gæfan fylgja ykkur í framtíðinni. Kveðja Kristey bekkjasystir.
hæhæ!!
Ég er örugglega búin að kíkja svona 100 sinnum á síðuna síðan ég fékk sloðina:) ákvað að kvitta fyrir mig í þetta sinn!!:) Vona að litli kúturinn nái sér sem fyrst!!!!
Bestu kveðjur
Soffía
Innilega til hamingju með litla prinsinn, hafið það sem allra best
Kveðja Árný og litla prinsessan:)
Velkominn í heiminn sætisæti frændi....
sýnist þú vera nokkuð líkur honum pabba þínum, hlökkum til að hitta þig
Kveðja frá Akranesi
Hrefna Rún, Hlini og Kristófer Áki
Elsku Hrafnhildur og Kristján,
hjartanlega til hamingju með litla yndislega engilinn ykkar.
Vonandi hafið þið það sem allra best saman. Við erum að skreppa úr landi en komum að kíkja á ykkur við fyrsta tækifæri þegar vel hentar. Hlökkum alveg rosalega til að sjá ykkur öll.
Bestu kveðjur, Björgvin og Stína
Innilegar hamingjuóskir með drenginn. Myndarlegur piltur þarna á ferðinni. Ég vona að þið hafið það öll sem best og takk fyrir að leyfa mér að fylgjast með :)
Bestu kveðjur, Mæja og Hnikarr.
Var að frétta af þessari fínu heimasíðu. Hjartanlega til hamingju, elsku krakkar mínir, með litla manninn og guð og gæfan fylgi ykkur öllum. Nýbakaði afinn færði mér fyrstu myndirnar í dag og þær lofa góðu, sá litli byrjaður að skoða heiminn og foreldra sína fyrst og fremst.Það verður gaman að fylgjast með þegar andlitið verður búið að ná sér eftir hremmingarnar.Bestu kveðjur frá afa og ömmu.
Hallo!
Nå har jeg sett på bildene av den fine gutten. Så fin han er!Ønsker dere lykke til alle tre!
Hilsen bestemor og oldemor.