

Gleðileg hátíð litli kútur og þið öll ! Það er gaman að heyra hve vel gengur á litla heimilinu ykkar , fyrirmyndar barn að sjá og heyra. Gangi ykkur vel áfram, það er ósk okkar og von. Allt gott að frétta og nú er að mestu hætt að vaka !Kær kveðja - langamma.
Góðann daginn.
Það er hátíð en eftir að maður barnabörnin fæðast þá dettur þeim stundum í hug að gista, morgninum var startað hér kl 7. Ásin er góður að vakna.
Ég fór þá aðeins að kikja og það er á hreinu að Kristján á þennan strák allan. Það er sjálfsagt fallegt fólk í þeirri ætt líka svo við erum mjög ánægð með útkomuna.
Búin að draga upp fánan en þið?´Sé ykkur eftir 2 daga kanski.
Bless besta amma í heimi
Bara að kvitta fyrir mig!! Frábært hvað allt gengur vel, knús til litla mannsins, kær kveðja Helga
Hæhæ!
Við vildum bara kvitta fyrir innlitið snúlli litli. Rosalega gaman að sjá hvað þú braggast vel. Biðjum að heilsa mömmu þinni og pabba.
:)
vá hann er jafn sætur í real eins og á myndum, alger engill. takk fyrir kaffið og bakkelsið í dag ;)
Hei og hopp.
Gratulerer med gullklumpen. Håper det går bra med dere.
Han er kjempesøt. Gleder oss til å treffe dere.
Klem fra oss alle
Kæru foreldrar
Okkur langar að óska ykkur hjartanlega til hamingju með þennan líka myndarlega strák sem er komin í heiminn. Gott að heyra að allt gengur vel hjá ykkur.
Guð og gæfan veri með ykkur áfram.
Hæ sæti strákur!
Mikið er gott að sjá að þú ert loksins kominn heim til þín.
Gangi ykkur vel í framhaldinu.
Kv. Sigrún og Óliver
Takk fyrir heimsóknina í dag. Þú varst rosalega stylltur endilega komdu sem oftast.
Sjáumst
Hæ hæ sæti strákur. Velkominn í heiminn og til hamingju með að vera kominn heim. Frábært að allt gangi svona vel hjá ykkur og þetta á bara eftir að verða skemmtilegra. Við kíkjum á ykkur þegar við verðum flutt suður. Vonandi passa fötin á þig.
Kveðja Rakel Sif og mamma
Halló fjölskylda. Til Hamingju með strákinn, auðvitað klikkaði langamma hans ekki frekar en fyrri daginn, sá að kúlan var verðandi strákur. Ég er búin að fara nokkrum sinnum inn á síðuna en aldrei kvittað, geri það hér með.
Mikið er ég fegin að þið eruð öll komin heim
Gangi ykkur vel.
Guðný Gréta.
Til hamingju með prinsinn. Vonandi gengur allt vel hjá ykkur.
Kv 'Aslaug Ott
Sæll og blessaður félagi og velkominn heim. Gott að sjá að þú braggast svona vel. Vonum að þú haldir mömmu og pabba vel við efnið en samt ekki ofkeyra þeim ;) Hittumst vonandi fljótlega, maður er nefninlega orðin frekar óþolinmóður á að bíða eftir að sjá prinsinn.
Hafið það sem allra best.
Kveðja
Lilja og gaurarnir
Hæ til hamingju að vera komin heim.
Það væri flott að sjá þetta dökka barn í bláu eða kanski gulum kjól
Bless besta amma í heimi og góður frændi sem kann að hita mjólk á pela.
Elsku Hrafnhildur og Kristján! Innilegar hamingjuóskir með heimkomu litla mannsins, sendi kærar kveðjur og knús yfir sundin blá, Helga
Velkominn heim litli prins!!! Gott að heyra hvað þú braggast vel :)
Gangi ykkur vel!
Kveðja, Þórunn og 8 daga snúllan hennar
Elsku krakkar mínir ! Ég hefi farið inn á síðuna ykkar á hverjum degi og það hefur verið ómetanlegt að fá að fylgjast með ykkur, en ég var ekki of viss um hvernig ég ætti að kvitta, eins og þið segið, en nú er það komið í lag. Enn og aftur til hmingju með framfarirnar, sem eru ótrúlega miklar eftir ekki lengri tíma. Það var alveg dásamlegt að sjá þennan fallega litla kút orðinn svona frísklegan í dag. - Hér er alltíeinu komið sumarveður, sunnan gola og hiti allt að 14 stigum og eins og er bara leikur að fást við ær og lömb, börn og gróður,vonum að verði framhald á því. Aðeins fáeinar ær óbornar, svo vökum fer að linna. Sem sagt allt bara gott að frétta. guð geymi ykkur öll. Bestu kveðjur frá langömmu og langafa. (Mundi satt að segja ekki eftir þeim nýja titli seinast ! )
hæ!!!
Til hamingju með að vera kominn heim af sjúkrahúsinu!!:)
Sjáumst hress eftir rúma viku eða svo!!:)
Bestu kveðjur frá Akureyri
Soffía og Svenni
Velkominn heim litli snúlli....ógislega gaman að sjá þig í fína gallanum þínum á leiðinni heim.....Vona að fyrsta "andvöku" nóttin hjá mömmu þinni eigi eftir að ganga vel :) brjóst brjóst og aftur brjóst hehe !! við fáum vonandi að kíkja á þig við fyrsta tækifæri :)
sjáumst
Velkominn heim, lítli maður. Við höfum verið tiðir gestir á þessari ágætu síðu þinni. Það er mjög gaman að skoða myndirnar af þér og þær færa mann svolítið nær, þó við séum langt í burtu frá þér.
Gangi þér nú sem allra best, litli vinur. Við sjáumst í júni.
Kær kveðja,
amma og afi
PS Hér með er kvittað fyrir tugi heimsókna á þessa siðu..
Velkominn heim litli kall :-)
Skilaðu til mömmu og pabba að fara að finna nafn á þig, Ernir er farin að kalla þig hinum ýmsu skrítnu nöfnum :-)
Bestu kveðjur
VELKOMINN HEIM!!!
Hann er auðvitað bara sætastur litli prinsinn. Frábært að heyra að allt gengur vel og gaman að skoða myndir. Þið standið ykkur öll eins og hetjur og ég hlakka til að fá að hitta litla prinsinn. Kær kveðja, Sigga bókó
Gaman ad sja fraenda litla Vonum ad allt gangi vel. Vid erum stodd a bokkum Columbia arinnar. Hofum tad gott. Komum heim a manudag.Bestu kvedjur, Hanna og Ingolfur
Bara að skoða sæta strákinn í borginni :o)
Flott hjá þér að vera svona duglegur því þá færðu vonandi að komast sem fyrst heim :o)
Kveðjur til ykkar allra
Heiðdís Dröfn og Bjarki Hólm
Elsku Hrafnhildur og Kristján! Frábært að skoða nýjustu myndirnar af litlu hetjunni ykkar, hann er sko aldeilis að sækja í sig veðrið sé ég, sendi ykkur hlýjar kveðjur og mörg knús, Helga
Hallló litla hetja :-)
Bara að kvitta fyrir mig... bið að heilsa mömmu og pabba
:-) sjáumst fljótlega aftur
Kæru foreldrar!
Til hamingju með litla prinsinn ykkar. Vona að allt fari nú að ganga vel hjá honum, og ykkur öllum. Bestu kveðjur:
Nunna Maja.
ooo æðislegar nýju myndirnar. Til hamingju með viku-afmælið gutti *kyss kyss*
bara að kíkja :P