

Velkomin á síðuna mína sem er haldið úti af foreldrum mínum fyrir alla sem vilja fylgjast með okkur
.

Skottið ég er 4 ára síðan í júlí og verð stóra systir í Október ;)
Mamma mín heitir Hjördís Sigurbjartsdóttir og pabbi minn heitir Jón Gunnar Sigfús Sigurgeirsson, þau er ekkert smá stolt af mér og finnst ég auðvitað vera langflottust!
Ég var skírð þann 29. júlí 2006 og fékk þetta fallega nafn, Rakel Lilja. Rakel er bara eitthvað sem mömmu og pabba datt í hug en Lilja er í höfuðið á ömmu minni Lilju úr Þykkvabæ.

Elsku Mamma og Pabbi!
Ég er með svo litlar hendur,
ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.
Fæturnir á mér eru svo stuttir,
farðu þér hægar svo ég geti fylgt þér.
Ekki slá á hendurnar á mér þegar ég snerti eitthvað fallegt,
ég skil það ekki.
Horfðu á mig þegar ég tala við þig,
þá veit ég að þú ert að hlusta.
Ég hef mjög viðkvæmar tilfinningar,
ekki alltaf vera að skamma mig.
Leyfðu mér að gera mistök
án þess að mér finnist ég vera vitlaus.
Ekki búast við því að myndin sem ég teikna
eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið,
elskaðu mig bara fyrir að reyna.
Mundu að ég er bara barn, ekki lítil fullorðin vera,
stundum skil ég ekki það sem þú ert að segja.
Elskaðu mig bara fyrir að vera ég,
ekki fyrir eitthvað sem ég get.
Ég elska ykkur svo mikið.....
Mamma fann þetta einhvers staðar og fannst þetta svo fyndið 
Foreldrar og börn.
Að verða foreldri breytir öllu í lífi þínu. Foreldrahlutverkið breytist líka með hverju barni.
Hér eru nokkur dæmi um hver breytingin verður frá fyrsta til þriðja barns.
Föt
1.barn: Þú ferð í óléttufötin um leið og þú ert búin að pissa á pinnann og fá tvö strik.
2.barn: Þú ert í þínum venjulegu fötum eins lengi og þú mögulega getur.
3.barn: Óléttufötin eru þín venjulegu föt.
Undirbúningur fyrir fæðingu
1.barn: Þú gerir öndunaræfingar, mjög samviskusamlega.
2.barn: Þú nennir ekki að æfa, vegna þess að þú mannst að síðast gerðu öndunaræfingarnar ekkert gagn.
3.barn: Þú pantar mænudeyfingu strax á 8. Mánuði.
Barnafötin
1.barn: Þú þværð öll litlu sætu fötin, straujar og brýtur saman og raðar í kommóðuna.
2.barn: Þú rennir í gegnum fatabunkann, hendir því sem er mjög blettótt og þværð restina.
3.barn: Strákar geta alveg verið í bleiku, er það ekki ?
Áhyggjur
1.barn: Við fyrsta kjökur eða tíst sem heyrist úr vöggunni, rýkurðu til og tekur barnið upp.
2.barn: Þú tekur barnið upp, svo það veki ekki eldra barnið með vælinu.
3.barn: Þú kennir þriðja barninu að trekkja sjálft upp óróann yfir vöggunni.
Snuðið dettur í gólfið
1.barn: Þú tekur það upp og notar ekki aftur fyrr en þú ert búin að sjóða það rækilega.
2.barn: Þú skolar það undir næsta krana, eða bara með svolitlum ávaxtasafa úr glasi barnsins.
3.barn: Þú þurrkar það mesta af því í bolinn þinn og stingur því aftur upp í barnið.
Bleyjur
1.barn: Þú skiptir um bleyju á klukkutíma fresti, hvort sem þess er þörf eða ekki.
2.barn: Þú skiptir á 2-3 klst. fresti, ef þess þarf.
3.barn: Þú reynir að vera búin að skipta um bleyju, áður en aðrir fara að kvarta undan lyktinni, eða bleyjan dettur niður fyrir hné á barninu.
Afþreying
1.barn: Þú ferð með barnið í ungbarnasund, ungbarnanudd og barnaleikfimi.
2.barn: Þú ferð með barnið í ungbarnasund.
3.barn: Þú ferð með barnið í Kringluna og Smáralind.
Pössun
1.barn: Í fyrsta skipti sem þú ferð út, þá hringirðu heim, 5 sinnum.
2.barn: Þú rétt manst eftir að skilja eftir númer, sem hægt er að ná í þig.
3.barn: Þú segir barnfóstrunni að hringja bara ef það sést blóð.
Heima
1.barn: Þú eyðir góðum hluta dagsins í að stara á barnið.
2.barn: Þú eyðir góðum hluta dagsins í að stara á eldra barnið svo það klípi ekki eða poti í augun á nýja barninu.
3.barn: Þú eyðir góðum hluta dagsins í að fela þig fyrir börnunum.
Tekið saman af þriðja barni sem spyr enn: "Hvar eru barnamyndirnar af mér eiginlega ?