Helena Rut Oddsdóttir
 


Sæl veriði og velkomin á heimasíðuna mína, ég heiti Helena Rut Oddsdóttir og ég fæddist 2. mars 2006. Foreldrar mínir heita Oddur Grétarsson og Guðlaug Þorleifsdóttir og við búum í Mosó.

Helena

Nafnið kemur úr grísku og þýðir sól. Helena er blíð og vill öllum vel. Hún ber sig tignarlega, og vildu margar konur vera í hennar sporum. Líf hennar er gefandi og gleðin ríkir.

Rut

Nafn þetta er komið úr biblíunni en merking er ekki þekkt


FISKARNIR

19. febrúar - 20. mars


Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum



Heimsóknir í dag: 2
Heimsóknir frá upphafi: 9995