

Komið þið sæl og blessuð.
Gaman að skoða myndirnar ykkar.
Bestu kveðjur úr Skagafirði
Helga Sjöfn
Halló, takk fyrir samveruna um helgina og alla hjálpina þetta var svaka gaman. Sérstaklega fyrir SYH og MLK að leika saman.....
knússssssssssss
þorramatur jam,ef ég væri þú Marta Lovísa mundi ég bara borða
gulrætur og kál. En kanski sver ég mig ekki í ættina.hef aldrei getað borðað hákarl eða hrútspunga.En þið hafið bæði stækkað og fríkkað síðan ég sá ykkur á mynd síðast. Annars finnst mér að foreldrar ykkar mættu vera duglegri að taka myndir.Jæja allur snjór farinn og kominn hafís sjáumst fyrir vestan hníf og gaffal. sibba á ísó. :)
Sæl verið þið öll! Héðan er allt gott að frétta, litla frænka ykkar dafnar bara nokkuð vel. Sefur orðið alla nóttina og rúmlega það, allt að 8 til 10 tíma. Og sefur svo yfirleitt vel líka fram að eða yfir kl. 12, en svo það sem eftir lifir dags þarf oft að hafa aðeins meira fyrir henni misjafnt samt dag frá deigi. Kristrúnu og Brag gengur bara nokkuð vel í skólanum, Bragi er svo líka að læra á bassa og æfa sund. Og gengur það líka nokkuð vel, mér finnst hann samt mætti æfa svolítið meira á bassann en hann virðist kunna þetta ótrúlega vel sem hann er að læra hjá kennaranum. Ég var áðan að fá mér kleinur og parta áðan, voða gott. Jæja það er víst að fara handbolti og ég ætla fara horfa. Bless bless. Ingunn
halló allir og gleðilegt nýtt ár....:)
varð að kíkja aðeins á ykkur og hlakka til að sjá ykkur í febrúar:)
kv Katý
til hamingju með daginn stóra systa
knús og kossar
Gleðilegt nýtt ár.
Svaka flottar myndir af nöfnu í garðinum sem er þó eitthvað minna flottur.
Sendum ykkur öllum knús og kossa í tilefni af nýja árinu
Marta, Halli, Snærún Ynja og litla snúlla
Gleðileg jól Lísa og co
Hafið það sem best um jólin. Vonandi "sé" ég meira af þér Lísa á nýju ári
Kveðja, Jóhanna, mens sana
Sæl og blessuð kæra fjölskylda. Ég og mín fjölskylda óskum ykkur gleðilegra jóla og farsælt á komandi ári. Lotta og Marta Lovísa takk fyrir allar skemmtilegar og góðar stundir í leikskólanum. Hittumst hress og fínu formi á nýju ári. Bestu jólakveðjur Ásthildur og co.
hæjj ´má ég fá lykilorðið:D sendu mer þá póst;S
Ohhh hvað þið eruð mikil yndi. Vonandi sjáumst við nú fljótlega á nýja árinu.....
knús og kossar
Marta og co
ps. svakalega eigið þið flottar lopapeysur
það er aldeilis fjör hjá ykkur. Bið að heilsa í kotið
Marta og co
halló allir....
skemmtilegt húsdýr sem þig eigið þarna...HAHA
en rosalega gaman að fylgjast aðeins með ykkur.
En ég var að spá hvort þið væruð til í að setja inn þær stærðir af fötum sem MLK og SAK nota ef þannig færi að þau fengju nýja flík um jólin:)
kv Katý
Hæ, hæ! Takk fyrir póstinn. Flottar myndir af börnunum ykkar. Krúttlegar myndirnar af Mörtu og Hafdísi. Það er aldeilis kraftur í þér Lotta mín að vera byrjuð að baka fyrir jólin. Látið ykkur nú batna bið að heilsa að sinni. Stórt knús frá MÉR og Reyni Þór
Sæl kæra fjölskylda! Ætlaði að skoða heimasíðuna ykkar en ég hef ekki lykilorðið. Bið að heilsa að sinni Ásta skásta
Sæl og blessuð!var að skoða myndir frá okt. flottir krakkar .sit hér og horfi út um gluggann hvar er þetta vonda veður ???? við höfum það ágætt er samt frekar úrill þessa dagana ,verð að fnna eitthvað jákvætt þá datt mér þið í hug. núna á ég vefmyndavél en ekki búin að prufa hana .var að búa til kæfu áðan ennþá svo sveitó.Núna ætla ég að hjálpa við saumaska hafið það sem allra best kveðja Begga
Ég hjelt að gerðurinn ætti ekki að vera á leiðinni inn i hús þarf að sýna afa myndir þegar eg kem heim er i vinnunni og fór að kikja a myndir og varð alveg hissa að sjá þetta vona að þetta verði i lagi hjá ykkur heyrumst vonadi sem fyrst kveðja amma
halló allir;)
vonandi hafið þið það sem allra best og hlakka til að sjá ykkur sem fyrst...
Hvernig væri að uppfæra jólagjafalistann fyrir þetta árið:)
kv Katý
knús og kossar
Svakalegt að sjá garðinn ykkar, vá vá ég vona að hann komi ekki allur inn í hús til ykkar.
Komið sæl og blessuð! Var að kíkja á síðuna ykkar og skoða myndir, sá margar nýjar myndir sem ekki voru þegar ég kíkti síðast. Litla frænka ykkar er sofandi núna, og er það þannig oftast. Vaknar til að fá að drekka og hreina bleiju. Ætla á eftir eða seinna í dag að senda ykkur myndir sem teknar voru á sjúkrahúsinu(fæðingardeildinni) á Akureyri þar srm hún fæddist að morgni 10. okt. Allir biðja að heilsa ykkur. Bless bless Ingunn og fjölsk.
Til hamingju með afmælið elsku Hjörtur okkar. Vonandi hefur þú átt góðan afmælisdag.
Knús og kossar frá
Mörtu móðu og co
Gaman að skoða síðuna ykkar. Rosalega flottar myndirnar af ykkur.
Lísa hættu svo að fela þig svona. Þig vantar alveg í hópinn ;)
Kveðja, Jóhanna
Sæl og blessuð öll sömul! Það er nú orðið býsna langt síðan ég hef kíkt á síðuna ykkar, en það er nú alltaf jafn gaman.Núna hef ég nægan tíma til að kíkja á hana þar sem ég er hætt að vinna, komin í sumarfrí og jafnframt að undirbúa komu barnsins sem á að fæðast í næsta mánuði. Þú ert nú býsna uppátækjsamur Sebastían Andri, og það er vissara að fara varlega í öllu bríli.Ég þekki það af eigin reynslu, ber þess merki enn í dag. Hér er svarta þoka, hefur að vísu aðeins létt til síðan ég kom á fætur.Jæja, kannski ég fari að hætta þessu og gera eitthvað fyrir heimilið.Bless,bless. Ingunn frænka á Egilsst.
Hæhæ logsins komst ég inn á síðuna ykkar,það var búið að vera eitthvað rugl á tölvuni hjá mér.Hafði það ekki af að kýkja á ykkur í sumar,tíminn er bara svo skratti fljótur að líða í gömlu sveitinni.Komst ekki einusinni í verk að fara með krakkana í göngutúr í skóginn sem er algjördrauma staður þeirra.Ég var aðeins að skoða myndir voða fínar,en ég á mikið eftir.Er ekki mjög þolinmóð í tölvunni.Krakkarnir voru að koma heim úr skólanum.Hallbjörn Heiðar er einn dag í skóla og einn í leikskóla.Systrum hans finnst hann mikil trassi að passa töskuna sína en vonandi kemur þetta allt hjá honum.Vorum að smala um síðustu helgi og fengum annsi blauta rétt,en þetta reddaðist allt.Vorum að senda lömb á Sauðarkrók í morgum,vona að ég geti letihaugast eitthvað núna.Er búin að vanda mig allveg rosalega að skrifa þetta vona að ég fái ekki margar stafsetningarvillur.haha.Bestu kveðjur til ykkar allra.Agla og co.
Mikið er orðið langt síðan við höfum skrifað hér..
Takk fyrir síðast!!! Það var frábært að koma til ykkur og vera hjá ykkur yfir eina helgi. Hlakka til að hitta ykkur aftur.
Bless bless,
rosa hlýtur að vera gaman hjá ykkur að hafa haft afa í sveitinni í heimsókn hjá ykkur. Svo er Eva bara flutt í næsta nágrennið amk næstu mánuðina heppin þið.
Knús og kossar
sæl verið þið systkini.
hvað seigið þið gott? skemmtilegar myndir á síðunni
ykkar.
Hey this is a message from norway (",)
Hope to see you all soon.. Take care of my sweet Bjarni..
Hug from Trude og Markus....
Hæ hæ, frétti af síðuna ykkar í saumó og varð að kíkja.Ekkert smá flottir krakkar :)
kveðja
Hildur Bjargmundsd.